Hljómlistin - 01.06.1913, Qupperneq 9

Hljómlistin - 01.06.1913, Qupperneq 9
HLJÓMLISTIN Allraörg lög hefir síra Stefán valið úr dönsk- uin kirkjusöng, sem hér hafa orðið alkunn og sum þeirra eru enn í vorum nýustu kirkju- söngsbókum. Nokkur af lögum þessum eru þó þýzlc að uppruna, t. d. »Hjartað, þankar, hugur, sinni«, sem er eftir Joh. Schop, fiðlu- meistara i Hamborg, er uppi var um sama leyti og Schútz og eins og hann um hríð við dönsku hirðina, en þó nokkrum árum áður (1615 —1619). Schop andaðist 1665 og eru cftir hann nokkur alþekt sálmalög, sem engu síður liafa orðið eign Dana en Þjóðverja. Frá 1569 til 1700 liöfðu Danir eigi aðra sálmasöngsbólc staðfesta af konunginum en Thomissöns sálmabók og kom hún í mörgum útgáfum og með nokkrum viðaukum og höfðu því Danir ekki önnur kirkjusöngslög en þau, sem voru í þeirri bók. Messubók, er fyrir- skipuð var i dönskum kirkjum, var allan þann líma Jespersens Graduale, er fyrst kom út 1573. Árið 1699 kom svo eftir 16 ára undirbúning sálmabók sú, sem kend er við Thomas Kingo, biskup á Fjóni, og með henni breyttist kirkjusöngurinn allmikið, þvíþarvar fjöldi af nýjum og gömlum lögum, er ekki voru þar til í kirkjusöng áður. Th. Ivingo (1634 —1703) var sálmaskáld hið mesta og jafnframt hið bezta, er Danir þá höfðu átt. Við sálma sína valdi hann fegurstu lögin, er hann þekti, og var því ekki að undra þótt þeim væri vel tekið. Urn nýár 1674 kom út sálmasafn hans: »Aandelige Sjunge-koors Försle Part«, sem síðar kom út í fjölda- mörgum úlgáfum og fyrir næstu aldamót var búið að prenta 6 sinnum; síðari parturinn lcom út 1681 og var honum tekið jafn vel.* 1) í fvrra parli þessa safns voru vikusálmar talinn þeirra lang-fremstur og enda einn af þeim ódauðlegu guðum sönglistarinnar. 1) Pann sálmaflokk þýddi sira Árni Porvarös- son á Pingvöllum, og kom út ásamt nokkrum lög- um í Skálholti 1693. Pað kver hefir ekki verið prentað siðan, og er nú orðið atar-fágætt. Titill- inn er: „Thomæ Iíingos Andlega Saung-kórs Annar Partur. Iiður Salarennar Uppvakning til allskins Guðrækne I allra Handa Tilterlum Allt Til Guðs Dýrðar". 71 kvöld og morgun og sjö iðrunarsálmar Da- víðs. Þessa sálma þýddi síra Stefán undir sömu lög og Ivingo hafði valið við þá, og voru þeir prentaðir aftan við Paradisar Lykil 1686, fyrstu bók, sem prentuð var i Skálholti. Lögin voru sjö, og urðu morgunsálmarnir allir lagboðar hjá seinni tíma skáldum, er ortu undir sömu bragarháttum. Þessir sálm- ar eru: 1 Jesú nafni upp stá, Hjarlað, þankar, hugur, sinni, Sæll dagur sá, Kom sæl, mæl morguntíð, Upp, upp stall í nafni Jesú, Sólin upp runnin er, — og Rís upp, mín sál, og bregð nú blundi. Fljótt urðu lög þessi vinsæl og voru sálm- arnir með nótunum teknir í Hólasálmabókina 1751, en það var sú fyrsta sálmabók, sem prentuð var á Hólum eftir að sálmarnir voru þýddir.1) Síðan voru þeir í Höfuðgreinabók- inni, er prentuð var á Hólum 1772 og eins og áður með lögunum. Ekki komust þó lögin inn í kirkjusönginn í'yrri en með sálma- bókinni 1801, en þar eru þau líka öll nema »Ivom sæl, mæt morguntíð«, og stendur það þó ekki að baki sumum hinum lögunum; en það var ekki heldur í dönsku sálmabókun- um, sem út komu þá fyrir aldamótin (Högh- Guldbergs 1780 og Evangel. Psalmebog 1798), en eftir þeim var aldamóta-sálmabók vor sniðin. Hljómleikar. Hér i höfuðstaðnum hefir verið óvenju mikið um hljómleika og söng nú fyrirfarandi. Söngfélagið »17. júni« byrjaði júnímánuð með samsöng. Var á söngskránni úrval úr lögum þeim, er félaginu einkum hafði tekizt 1) Næsta sálmabók á undan var prentuð á Hóluiii 1671, en í Kaupmannahöfn voru prentaðar tvær sálmahækur: Jóns Árnasonar 1742 og Bræðra- bók (Sigurðar og Péturs Porsteinssona) 17'6.

x

Hljómlistin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.