Hljómlistin - 01.06.1913, Side 17

Hljómlistin - 01.06.1913, Side 17
'55S ORGEL-HARMONIUM frá M. Höriigfel, hirðsala i Ijeipzig- — Leutzsch, eru stöðugt að ryðja sér til rúms, einnig hér á landi; það sýnir hin tiltölulega mikla sala á þeim í ýmsar kirkjur landsins nú á fám árum, auk hinna mörgu sem keypt hafa verið í heimahús, skóla og samkomusali (K. F. U. M. i Reykjavík og Heilsuhæl- ið á Vífilsstöðum o. fl.). Þau eru bæði framúrskarandi vönduð að efni og vinnu og auk þess hljómfögur og ódýr. Fortepiano frá Hornung &, IMföller, konungl. hirðsala í Kaupmannahöfn, seljast með ágætustu afborgunarkjörum: Mega borgast með jöfnum afborgunum á 35—37 mánuðum. Betri fermingargjöf handa söng-elskum unglingum get ég ekki hugsað mér. Eftir fullra 26 ára starfsemi mína í því að útvega mönnum hljóðfæri, er óhætt að treysta því að ég hefi náð beztu samböndum í þessari grein, sem unt er að fá, svo, að enginn annar hefur þau slík. Óvenjulega góðir borgunarskilmálar veittir áreiðanlegum mönnum og gömul hljóðfæri, með sanngjörnu, verði tekin í skiftum. Gerið svo vel að leita upplýsinga hjá mér áður en þér festið kaup annar- staðar; það mun áreiðanlega borga sig. Reykjavík, 7. marz 1913. Virðiugarfyllsl Jón Pálsson organisti við Fríkirkjuna i Reykjavík. ®®®®

x

Hljómlistin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.