Í uppnámi - 24.12.1902, Blaðsíða 28
86
Eptirmáli.
Með þessu hepti endar “I Uppnámi” göngu sína Það hefur
að vísu ekki orðið gamalt, en til þess var heldur ekki ætlazt, þegar
það var stofnað; það átti einungis að vera byrjun íslenzkra skák-
bókmennta og koma því af stað, að fleira af sama tagi liti dags-
ljósið, ennfremur yfirböfuð vekja athygli manna á skákbókmenntum
og bóklegri þekkingu og stundan skáktafls og stuðla að útbreiðslu
þessarar fögru, göfugu listar meðal Islendinga. Vér sjáum líka, að
það hefur náð því takmarki, er því var ætlað; skákfélög hafa verið
stofnuð víðsvegar um land og meðal Islendinga erlendis og blöð
hafa tekið að birta skákdálka; viljum vér einkum benda á skák-
dálkinn í “Þjóðólfi” sem þann helzta og líklegan til að halda skák-
lífinu við framvegis þar til annað íslenzkt skáktímarit rís upp og
vonum vér, að þess verði ekki langt að bíða. Sendum vér svo
lesendum vorum og öðrum skákvinum beztu skákkveðju og óskum
hinu íslenzka skáklífi vaxtar og viðgangs.
Útgefend urnir.