Heimir - 01.10.1905, Blaðsíða 20

Heimir - 01.10.1905, Blaðsíða 20
244 H KIMIR beinum og merg. Ekki svo mjög í því, sem menn kveöa, eins og í því, sem þeir hugsa og lifa. I fyrra skifti, er Þyrnar komu út, þóttu þeir guðleysis rit, nú viö aöra útgáfu aö eins mergjaö ádeilurit. Mikil eru þau sinnaskifti, er menn hafa tekiö síöan. Já, mikil, og þökk sé hrópandans rödd— og þökk sé skáldinu góöa. Innihald „Þyrna" er ekki mjög margbrotiö.' Það er eigin- lega ein hugsjón, sem öll aöal kvæðin snúast um. Og hugsjón- in er Rcttlœti. Meö þeirri einu hugsjón sem mælikvaröa, eru svo hinar ýmsu stofnanir, hættir og venjur manna mældar. Og sem einkenni réttlætisins, er skáldið leitar aö í lifi og högum manna— og jafnvel guös á himnum, eins og menn hugsa sér hann—, er kærleikur, friður og fögnuður, frelsi og lífsgleði,— fögnuöur yfir þeim mikla feng aö vera lifandi maöur meö ást, þrá, tilfinningu og hita í hjarta. Og aðra eins vörn réttlætinu og kröfu til þess, og „Þyrnar" eru, hefir ef til vill enginn annar dirfst aö kveða til þessa dags. En öll leit skáldsins að frelsinu, kærleikanum og réttlætis- tilfinningunni í mannheimum er þyrnivegur. Þaö er hvergi til. Aumingja vesalings mennirnir, þeir eiga enga tilfinningu nema áhyggjuna fyrir því, hverju þeir skuli klæðast, hvaö þeir skuli eta eöa drekka, og endruin og eins að þeir fá sára tilkenningu eins og Ambáles, þar sem vöndurinn hefir sárast sorfiö. Mann- kynið alt er eins og þjóflettur þræll, holrifin hind eða músétinn sauður. En þó er sál til, og æðri hugsjóna þrá ýmist sofandi eöa vakin til hálfs, er hafið gæti almenning upp úr þessari niö- urlægingu, ef ekki reyröi eins aö viöjar vanans og hlekkir harð- stjórans. En hví eru menn í böndum— og hver er haröstjórinn ? — Kyrkjan og keisarinn— kyrkjudómurinn og keisaradómurinn. Skáldiö snýr sér því aöallega aö kyrkjunni. Hún hefir verið valdmeiri og áhrifameirr en keisaradómurinn. Af henni krefst hann réttarins, er hún hefir haldiö fyrir þjóöunum. Aö henni beitir hann öllum sínum örbeittustu skeytum í kvæöunum „Ör- lög guöanna", „Örbyrgö og auöur", „Ljóniö gamla", „Bókin mín", „Bæn Faríseans", „Á spítalanum" o. fl., en til þeirra

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.