Heimir - 01.10.1905, Side 23

Heimir - 01.10.1905, Side 23
H E I M I R 247 „því djarfmannlegt áræöi er eldstólpi sá, sem eyöimörk haröstjórnar leiddi okkur frá, og guö sem mun gefa okkur landiö." En hví aö vera aö orölengja þetta. Þaö er ekki hægt að lýsa „Þyrnum", menn verða aö eignast þá og lesa. En þaö má um Þorstein segja, aö hann kennir eins og sá, sem valdiö hefir, en ekki eins og hinir skriftlæröu. ÞJÓÐMÆLI: S. B. Bonediktsson. Winnxpeg. 1905. Freyja Printing & Publishing Co. 127 bls. Ilöfundur ljóöa þessara er þegar oröinn mörgum hér uin sveitir nokkuö kunnur. Ljóö hans hafa birzt viö og viö í ísl. blöðunum og enn nokkur, er hinsveginn hafa borist mann frd rnanni. Þau hafa ferigið misjafnan dóm, eftir þvf sein áliti manna hefir verið varið, og lakast, þau hafa á stundutn veriö látin gjalda fööur síns.ef menn hafa átt einhverja liönk viö hann aö toga, sem stundum hefir viljaö til út úr ýmsum skoöanamun og félagsstappi, er altaf feilst nóg tii af á meðal vor. Sigfús er rnaöur spottgjarn og óvæginn aö upplagi, og því sem hann trúir ekki, trúir hann ekki, og lofar rnönnuin óspart aö heyra þaö. En það er hieinskilni, sern fáir meta, og því á hann stundum í erjum og því eru öll hans verk og athafnir oft óbilgjarnt dæmd. Þegár ljóö þessi komu út í haust,varð tíörætt um þau manna á meöal, og svo kornu nokkrir dónrar urn þau í vikublööunum. En engir þeirra, aö oss virðist, sanngjarnir. Þau voru ýrnist of- lofuð eöa oflöstuö. I bókinni eru 1 1 1 ljóö, og er þvf ekki rúm til aö ræöa hvert þeirra út af fyrir sig. Mörg þeirra eru vel samin, þó kannske ekki braglýtalaus sum, eins og höf. sjálfur kannast viö í formála bókarinnar. Aftur eru allmörg, er vér kunnum ekki viö, bæöi sökurn efnis og kveöanda, en þaö er ekki höfundarins skuld. Hann segir aö fyrir sér vaki, aö segja þaö hátt, sein hann hugsi lágt, og hann hefir gjört þaö. Hvað eru þeir rnargir, er þyröu aö gjöra slíkt hiö sama? I því atriöi hefir Sigfús sýnt óvestur- íslenzkan dug, og hafi hann þökk íyrir það\ þótt vér séum alls ekki samþykkir honum í því, sem hann hefir hugsað.

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.