Heimir - 01.03.1906, Blaðsíða 5
H E I M I R
53
vrr 8 ára. Meö eignunum hurfuXinirnir, er áöur voru margir.
Þau liföu því í fátækt og nutu sín lítiö meöal samtíöarmanna
sinna. Skáldiö átti því viö þröng' kjör aö búa lengi framan af,
og er þaö álit margra æfisögu skrifara hans, aö frá uppvaxtar-
árunum hafi stafaö hinir einkennilegu skapsmunir hans, er
íylgdu honum síöan alla æfi og óbeit sú á almanna lofi og há-
værum glaumi, er hann aldrei gat losaö sig viö.
Er skáldiö var 16 vetra fór hann aö heiinati og réöist sem
apotekarasveinn í þorpi einu er Grimstad hét. Bjó hann þar
skamma stund, því eins var þorpinu Grimstaö variö og Björn-
son kemst aö oröi í „Fiskimærin", „þar sem sílin hefir safnast
undir landsteina myndast þorp". Sálarlíf hans þarfnaðist víö-
tækari sjóndeildarhrings en þaðan var. Hann fór því nokkru
síöar meö tilstyrk vinar síns til Kristjania-háskólans. Meöan
hann dvaldi þar, tók hann hinn drjúgasta þátt í allri frelsis-
baráttu Noregs yngri manna. Þar kyntist hann Björnson.
Hann ætlaöi aö nema læknafræöi, en hætti því innan skams.
Og þótt það færist fyrir að hann yröi héraös eða bæjar læknir í
Noregi, þá hefir hann þó verið til síns síöasta dags landlæknir
sinnar þjóöar. Enginn sá glöggar meinin en hann, enginn
bætti Jtau fieiri.
Eftir 14 ára stríÖ fór hann af landi burt áriö 1864 og
dvaldi erlendis í 27 ár. En allan J»nn langa dag var þó hug-
urinn aitaf heima hjá landi sínu og þjóö. 1891 flutti hann
heim aftur og settist aö í höfuöstaö landsins. Noregur var
konungláus þá, en skáldkonunga átti hann tvo, er ókrýnd höf-
uö báru yfir allan aöalsmanna flokk um víöan heim. 1898 var
myndastytta af skáldinu reist upp í leikhúsgaröi borgarinnar,
til minningar um 70. afmælisár hans.
Einkennilegt er þaö, aö í Jressi síöastliöin 5 ár er Nobels-
verölaunin sænsku hafa veriö veitt fyrir ágæti í bókmentalegu
starfi aö ekkert áriö skyldi Ibsen vera úthlutuð Jjau, og þar þaö
sem Björnson hefir Jtó veriö veitt J?au, svo ekki er hægt aö
segja aö fram hjá Noregi hafi alveg veriö gengiö. En Henryk
Sienckiewicsz og öðrum slíkum, er fengist hafa viö aö semja
sögur upp úr sögunni, eru fengin Jjau meö mikilli viöhöfn.