Heimir - 01.06.1907, Page 10

Heimir - 01.06.1907, Page 10
6 H E I M I R Gersemarnar á Héranesi. e f t i r „Mark Tain“. Fyrir nokkrum árum síðan átti eg heima í þorpinu Wind- enough. Þar er landslagi svo háttað, að áin Currentless renn- ur framhjá þorpinu, og eru nokkrar mílur frá þorpinu og til sjávar. Hinumegin við þorpið eru síki nokkur, sem eru mjög ill yfirferðar, og aö eins gagnkunnugir menn geta komist yfir. Þar sem þorpiö Windenough stendur er hálent og bratti mikill nið- ur að ánni Currentless, og svo bratti töluverður á hinn bóginn niður að síkinu. Þaö er á að geta 3 mílur milli síkisins og ár- innar þar sem þorpiö stendur, en skamt fyrir neðan þorpið þá skerst vík úr ánni áleiðis í áttina til síkisins og sfkið beygist til árinnar, svo að örstutt er á milli. Svo breikkar landið á milli þeirra, en mjókkar svo aftur þegar nær dregur sjónum. Nesið sem þannig myndast er áþekt hjarta sem hangi neðan við þorp- ið Windenough. Nes þetta er ilt yfirferðar á pörtum, sérstak- lega þeim megin sem síkið er, það eru hér og þar forarpyttir, en gras inikið, og eigi gott að sjá hvar pyttirnir eru. Nokkur hluti af nesinu er kjarri vaxin, fáeinar skógarhríslur eru þar, og svo líka nokkrir þyrnirunnar. Nes þetta var kallað Héranes. Mun það hafa fengið nafn af því að töluvert var af hérum í nes- inu. Allir þorpsbúar trúðu því, að peningar og ýmsar gersem- ar mundu vera þar fólgnar. Víkin sem skarst úr ánni inn í nesiö sést ekki öll fvrr en siglt var eftir og fóru sögur af því, að þar hefði verið leynihöfn nokkurra sjóræningja, og að þeir hefðu fólgið ránsfé sitt einhversstaðar í nesinu, en aldrei kom- ið aftur til að vitja þess, og þorpsbúar bjuggust ætíð við að þetta fé mundi finnast. Engar sérstakar iðnaðarstofnanir voru í þorpinu nema ein verksmiðja, þar sem búið var til Fosfor (glórefni). Nokkrir framtakssamir þorpsbúar höfðu tekið sig saman og safnað fé til að koma því á fót. Hafði sú fjársöfnun staðið yfir nokkur ár, en fyrir dugnað forgöngumanna og spar- semi þorpsbúa, þá loks tókst þeim að koma þessu verkstæði á

x

Heimir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.