Heimir - 01.06.1907, Blaðsíða 11

Heimir - 01.06.1907, Blaðsíða 11
HEIMIR 7 laggirnar, en sem í ýinsu var ábótavant, og sem ekki var hægt aö bæta úr fyrri en meira fé væri safnað. Fjársöfnuninni var því haldiö áfram, því allflestum í þorpinu var þetta í fyrstu á- hugamál. Þó voru nokkrir menn, sem ekki vildu leggja neitt af mörkum til glórefnisverksmiöjunnar. Þeir kváöust enga trú hafa á fyrirtækinu. Þeir sögöu, aö þeir gætu ekki skiliö í því, að það gæti verið „markaður" fyrir svo mikiö glcrefni scn ráö væri fyrir gert að framleiöa. Hinum vaið svo í nöp viö þá, sögöu aö þeir spiltu fyrir málefninu og kölluöu þá föðurlands- óvini o. s. frv. Þorpsbúar voru dálítið hjátrúarfullir. Höföu þeir þaö fyr- ir satt, aö eldar heföu átt að sjást brenna í Iiéranesi, og átti þaö aö vera logar upp af hinum fólgnu fjársjóöum, er sjóræn- ingjarnir höföu grafiö þar.og enginn enn þá fundið. Enginn gat þó nafngreint neinn sem þá var lifandi, sem heföi séö eld- inn. En svo bar þaö við einn morgun, aö allir þorpsbúar voru uppi um þaö leyti aö dagur var aö koma upp. Hafði sú fregn flogiö um alt þorpiö, aö eldur heföi sézt brenna um nóttina í Héranesi. Nokkrir drengir, sem voru á héraveiðum eöa á öör- um veiðum, þóttust hafa séö eldinn. Einn þóttist hafa séð hann framarlega á nesinu, annar þóttist hafa séö hann ofarlega á nesinu áarmegin, og enn annar kvaöst hafa séö hann ofarlega á nesinu síkismegin, og nokkrir sögðust hafa séð hann í miöju nesinu. Þeir höföu ætlaö aö handsama hann eða komast aö honum, en hann heföi ætíö færst undan; þeim bar öllum sam- an um það, aö hann heföi logaö, og í hvert skifti sern hann heföi færst undan þeim, þá heföi hann blossaö upp og stundum komust þeir svo nærri honum, aö þeir heyröu ,snarka‘ í sinnnni þegar blossarnir loguöu upp. Allir þorpsbúar voru þess full- vissir, aö þetta væri loginn eöa logarnir af fjársjóöum þeim, er fólk var fulltrúa um að þar væri grafið. Og þaö sem styrkti þá enn frekar í þessari trú—ef annars var hægt aö auka hana-- var þaö, aö öllum sem höföu séö elda þessa eöa loga, bar sam- an um, aö þaö heföi ekkert lýst út frá þeim. Þeir voru þá margir, sem höföu heyrt hana ömmu sína eða afa sinn segja frá því, aö þaö væri óyggjandi einkenni á eldum, sem brenna þar

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.