Heimir - 01.07.1907, Blaðsíða 17

Heimir - 01.07.1907, Blaðsíða 17
H E I M I R 4i (pathetic) og hugönæint, en var sett dálítiö hlægilega frain í leiknutn. Annar þessara náunga skellihló, en eg sá aö hinn tárfeldi (ekki af hlátri). Svo um kveldiö var eg spottakorn samferöa þeim sem hló, og spuröi eg hann ‘hvernig honum heföi þótt leikurinn. Hann sagöi „ágætlega". Kvaöst hann hafa haft einhverja þá beztu skemtun. „Já, eg sá aö þú hlóst dátt. En tókstu eftir honum", og eg nefndi manninn á nafn, sem sat hinumtneginn viö mig, „Já", sagöi hann, „mér virtist hann gráta". Eg svaraði á þá leiö að hiö sorg- lega í leiknum nrundi hafa hrifið hann meira heldur en þaö hlægilega. „En hann heíöi átt aö vita að þetta er tilbúning- ur altsaman og naumast þess vert, aö skæla út af því," svaraði hann. Eg hélt nú aö hann sjálfur heföi líka vitað þaö sama, nefnil., að það væri skáldskapur, en þó hefði hann ekki get- að varist hlátri. „En það var svo hlægilega sett franr", svar- aði hann. Daginn eftir hitti eg hinn manninn og spurði hann hvernig honurn hefði þótt leikurinn í gærkveldi. „Hann var ágætur", svaraði harin. „Skemtir þú þér þá vel?" spurði eg. „Já", svaraöi hann. „Mér virtist leikurinn hafa töluvert ólík áhrif á þig og hinn nranninn", se.n eg nefndi. „Hann skelli- hló, en þú grézt. Heldur þú nú ekki aö hann hafi skemt sér betur en þú?" „Já, vissulega", svaraði hann. „Það er varla efi á slíku. Hans gleði sýndist vera ónrenguð, en mín var ó- neitanlega blönduð sorg. En því er nú sanrt svo varið, að eg vil heldur hlusta og horfa á sjónleik þar senr einhver „pathos" er, heldur en á kómedfu, jafnvel þó eg gráti við að hlusta á hið fyrra, en hlægi við aö því síðara". „Þú vildir þó sjálfsagt hafa skifti á tilfinningum í þessu atriði við mann þann sem hló í gær v kveldi, þegar þú viðurkennir að hann hafði nreiri ánægju af leiknum en þú?" spurði eg. „Nei", svaraði hann og leit stór- unr augum til mín. „Maðurinn hló í gærkveldi af því hann er hreinn bjálfi og skildi ekki það sem verið var að fara með, og þótt hann sé ríkur en . eg fátækur, þá vildi eg ekki hafa skifti þótt eg fengi alt hans fé í milligjöf." Ef erigin eðlishvöt er til hjá manninum nema sjálfsumhyggja, því vildi ekki þessi maður L

x

Heimir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.