Heimir - 01.09.1907, Side 6

Heimir - 01.09.1907, Side 6
7» H E I M I R sannan tilverublæ á æfi vora. Höpp og óhöpp, lán og ólán,— að eins að tilfinningarnar séu vakandi fyrir hvorutveggja og vér viljum vera hver öðrum bróðurlega vingjarnlegir í sorg og gleði. Það er haft eftir meistaranum sjálfum, að hann hafi sagt, er hann bað íyrir lærisveinurn sínum: „Faðir minn, eg bið þig ekki að þú takir þá úr heiminum, heldur að þú haldir þeim í heiminum." Þaö er líka heilbrigðari skoðunin,— að oss sé hald- ið í heiminum af verndarhendi hins góða guðs og studdir til þess að verða einhverju góðu að liði. Eg trúi ekki á heilagt fólk. Mér finnst allt heilagt fólk skorta allan manndóm, hvort sem það er af því að guðdómurinn þar yfignæfir. Mér finnst alt heilagt fólk andlega volað og vankað, og sannast að segja skin- helgir hræsnarar. Heilagt fólk temur sér vol og víl í tali, það temur sér að bera langt—fjarska toginleitt, slétt og hrukkulaust andlit, það hylur fyrir samferðafólkinu bros sín, og bresti sína, og bræði sína—því því sinnast oft herfilega, og það Kefnir sín griminilega á laun. Eg ann ekki launvígum. Það er óholt, langa andlitið broslausa. Það er svo dauðalegt og fölt, eins og jurtir þær sem aldrei hafa horft framan í.sólina. Það er eins og það hafi vaxiö í felum út af almannaveginum— í ineinum. Yður máske virðist ekki eitt og hið sama og mér. Yður kann- ske finnst manndómseinkennin koma fram í fólkinu með heilag- leikum, í varfærnis- sálarlausu- hversdagslegu ræðugjörðum þeirra. En mér finnst það fólk eiga meira af manndómi, vera sannara fólk, sem ekki er alveg skuggalaust, og veit því ekki nema að óvinurinn geti fest hönd á kápu þeirra, nema því að eins það taki höndum saman með samferðamönnunum og verði einhverju góðu að liði. Það virðist sennilegt, að það sé betra að treysta á þá réttlætingu, að góðverkin yfirgnæfi, heldur en á það, að verjast allra verka, svo að í hvorugan dálkinn sé hægt að færa starf mannsins um æfina. Þessi heilagleika krafa, sem sumir krefjast til þess, að maðurinn fái að verða að manni, er tæpast alvarlegra orða verð. Réttlætið er fyrst, síðast og ætíð það, sem ræður því, hvert maðurinn er maður. Að kasta frá sér því æðsta til þess að taka upp við tröllahendur eins og Peer er óláns vottur, er sannarlega að vera ekki, hvað sem heimur- inn kann að álíta.

x

Heimir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimir
https://timarit.is/publication/440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.