Heimir - 01.09.1907, Blaðsíða 23
Ii E I M I R
95
ar eigin. Ef vér finnum eitthvaö þaö í þeim, sem getur’staö-
ist óbreytt í ljósi þeirrar þekkingar, sem vér höfum og vafa-
laust er það margt, sem þannig er varið, þá er engin ástatða
til að breyta því. En vér megum ekki gleyma því að án þess
að nota þekkinguna og skynseinina og skoða alt við þeirra ljós,
og játa svo hreinlega frammi fyrir öðrum, að hvaða niðurstöðu
vér hötum koinist, getum vér als ekki oröiö sannfrjálslyndir
menn. G. A.
Að lifa hinu hreinasta lífi, virðist vera þetta: að gefa sjálf-
an sig algjörlega og óskiftan við því, sem er stórt og hefir gildi
í sjálfu sér, að leggja þar fram alla sína hamingju hvað sem
fyrir kann að koma. „Reiddu þig á hinn innra mann", segir
Markús Aurelius. Þann innra mann kallar hann á öðrum stað:
„Guð hið innra í oss". Þetta gerir lífið einfalt og óbrotið. Þeir
sem reglunni fylgja verða vanalega ekki millíóna eigendur.
Þeim er greiðari leiðin að krossinum. Samt sem áður er það
eini vegurinn til að öðlast líf, já, jafnvel hér í þessum heimi,
því það eru þcir einir, sem komast að leyndardcminum um al-
gjörðan hreinleika. Það eru þeir, sem sjá að lífið er eitt frá
byrjun til enda í gegnum allar umbreytingar, ofið úr sama efni
alt í gegn. Þessir menn finna í starfi sínu og í skemtunum sín-
um, í skoðun sinni á öllum hlutum og í sínum leyndustu hug-
renningum að lífið er himneskt. Þeir finna hið eina í öllu og
það eina fullnægir þeim.
Þetta er hið hreina líf, sá hreinleiki, sem er takmark list-
arinnar og hinnar innri sjálfsmentunar. Þegar vér höfum náð
því marki falla smámunirnir í Ijúfa löð. Hvað vér eigum að
borða og drekka og hverju vér eigum að klæðast, verður oss þá
ekki lengur áhyggjuefni. Urn lífsþægindin getum vér þá sagt
eins og Antonius: „Hann naut þeirra hræsnislaust meðan þau
voru og æðraðist ekki þó þau skorti". Og um fátæktina með
Seneca: „Það er ekki sá, sem hefir lítið, sem er fátækur, held-
ur hinn, sem altafgirnist ineira". Það sem vér höfum er mikið.
Guð, alheimurinn og vor eigin sál. Konungar og keisarar geta
ekki látið meira í bikar sinn. Ef til vill getur þú í ástandi hrein-
leikans notið meiri gæða en þeir. J. Bricrlcy.