Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 6

Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 6
Kirkjuritið. VIÐ VÍGSLUTÖKU FRIÐRIKS J. RAFNAR VÍGSLUBISKUPS Á HÓLUM 29. ÁGÚST 1937. Ræða dr. theol. Jóns Helgasonar biskups. Náð sé með vður og friðnr frá Guði föður vorum og drotni Jesú Kristi. Amen. Gal. 2, 20. „Sjálfur lifi ég ekki frarnar, heldur lifir Krist- ur í mér. En það, sem ég f)ó enn lifi i lxoldi. það lifi ég í triinni á Guðs son, sem elskaði mig og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir mig“. Ég liefi einhversstaðar lesið og fest mér í minni svo- hljóðandi ummæli nafnfrægs djúphyggjumanns á vor- um dögum: „Eins og Jesús segir: ,IIver sem sér mig, hann sér föðurinn1, eins ættu allir kristnir menn að geta sagt: Hver sem sér oss, hann sér Ivrist“. Hugsun þessi er áreiðanlega hákristileg og i rauninni litl liægt með færri orðum að brýna fyrir kristnum almenningi skylduna, sem tignarheitið „kristinn“ leggnr þeim á herðar, sem kalla sig svo. Hver sem sér kristinn mann, hann ætli um leið að geta komið auga á Ivrist og við það að skapast með lionum næmleiki fyrir Kristi og liinum lifanda Gnði, sem hirtist oss í Kristi. En er Jiað ekki fásinna að ætlast til ]>ess af nokkurum kristnum manni, svo ófullkomnir sem kristnir menn eru og brevskir upp og ofan, að liann lifi og breyti svo, að um hann megi segja: Hver sem sér þennan mann, hann

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.