Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 10

Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 10
304 J. H.: Vígslutaka ,séra Fr. J. Rafnar. Kirkjuritið. kunnugt er, enga breytingu á verkahring þínum seni orðsins þjóni og samverkamanni Guðs að sálarheill safn- aðanna, sem þér hefir verið trúað fyrir. Hún leggur þér engar nýjar embættisskyldur á herðar umfram þær, sem þú hingað til hefir átt að rækja sem prestur og sálusorg- ari. Hún aðeins heimilar þér að vinna sérslök iiiskujis- verk, sem þér kumia að verða falin og ekki leljast til hinna umboðslegu starfa biskupa þessa lands samkvæmt lögum og fornri venju. En þess er þá lika að minnast, að biskupsslaðan er upprunalega ekki annað en sálu- sorgarastaða, í engu frábrugðin preststöðunni. En þótt hún yrði er tímar liðu fram metorðastaða, andleg for- vstustaða, þá hefir biskupinn þó, kristilega og kirkjulega skoðað, aldrei verið annað en það, sem kallað er ,,primas inter pures“, þ. e. fremsti maður í hóp jafningja. Þegar því stéttarbræður þínir hafa nú kosið þig vígslubiskup, jiá felst í þvi viðurkenning þeirra á þér sem „fremstum meðal jafningja“, viðurkenning, sem ríkisvaldið liefir samþykt með sérstakri embættislegri skipun, og kirkjan staðfestir með því að veita þér sérstaka vígslu til þeirrar þjónustu, sem þér sem vígslubiskupi kann að verða falin. Ég gel ekki leitt hjá mér við þetta tækifæri að minna á það, að þú, kæri bróðir og vinur, verður annar i röð- inni biskupa hér norðanlands, sem í heilagri skírn hlutu nafnið „Friðrik“, og meira að segja, að sá, sem á undan þér bar þetta sama nafn, var fyrsti biskupsvígði maðurinn, sem kunnugt er um, að hér hafi stigið fæti á fold til að vinna biskupsverk, síðan er Island bygðist. Þess er ekki siður ánægjulegt að minnast, að þessi nafni þinn í bisk- upsstöðu fær af skilorðum sagnaritara vorum þann fagra vitnisburð, að liann væri „postullegastur í anda og athæfi allra þeirra manna, er hér boðuðu kristni". Vil ég' meg'a gera mér í hugarlund, að sá dómur hafi verið svo lil kominn, að menn hafi þózt sjá þess vott i lifi lians, að þar færi sá er gæti sagl með ppstulanum: „Sjálf- ur lifi ég ekki framar, heldur lifir Kristur í mér“.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.