Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 14
-•508
Friðrik Rafnar:
KirkjuritiS.
skólans á Akureyri 13 ára gamall, liaustið 1904, en síð-
ari hluta vetrar réðist það, að ég héldi þar ekki áfram
námi, heldur gerðist skrifstofuþjónn hjá verzlunarhús-
inu G. Gíslason & Hay i Leilh, sem þá var stofnað fyrir
nokkurum árum. Muii ég hafa notið að frændsemi og
vináttu þeirra hjóna Garðars stórkaupmanns Gíslasonar
og konu lians við þá ráðstöfun, sem gerð mnn liafa verið
með það tvent fvrir augum, að gefa mér kost á að mcnt-
asl i verzlunarefnum og afla mér lifvænlegrar framtíð-
arstöðu, og á liinn hóginn að létta undir með foreldr-
um mínum og taka af þeim þær fjárhagslegu áhyggjur,
sem j)ví fylgdu að koma mér til manns. Var ég svo
fermdnr í Munkaþverárkirkju 28. maí 1905 og fór síð-
an alfarinn, að j)ví er við var búist, úr foreldrahúsum
hinn 23. júní um sumarið.
Næslu 3 árin, eða þangað lil í aprílmánuði 1908, vann
ég svo á skrifstofu i Leitli, og hjó Iengsl af þeim tíma
á heimili þeirra lijóna Garðars Gíslasonar og konu iians.
Reyndust þau mér i öllu eins og foreldrar, og þó ekki
yrði úr því, að ég gengi þá braut i lífinu, sem til var
stofnað fyrir þeirra atbeina, minnist ég þessara ára all-
af með j)akklæti. Voru j)að mér í mörguni efnum lær-
dómsríkir tímar, sem síðar Iiafa komið mér að ómetan-
legpm notum. Jafnframt vinnu minni á skrifstofunni
stundaði ég' í tvo vetur nám við kvöldskólann Leith
Academy og lauk þaðan prófi í bókhaldi.
Vorið 1908 flultist ég til Revkjavíkur og vann ])á í
nokkura mánuði á skrifstofu firmans þar. En á þessum
árum varð mér æ betur og betur ljóst, að hugur minn
stóð ekki til verzlunarstarfa, heldur óx mér með vax-
andi j)roska stöðugt löngun lil skólanáms. Varð það því
úr, með samþykki foreldra minna, að ég haustið 1908
settist í 3. hekk Gagnfræðaskólans á Akureyri og lauk
þaðan prófi vorið 1909. Seltisl ég svo um liaustið i 1-
hekk liins almenna mentaskóla og tók próf þaðan vorið
eftir, en lauk síðan stúdentsprófi vorið 1912, eftir