Kirkjuritið - 01.10.1937, Qupperneq 18
Kirkjuritifti
DWIGHT L. MOODY.
Minningarorð flutt á Prestastefnu íslands 1937.
Biskup Islands, dr. Jón Iielgason, nefndi við mig fyr-
ir skömmu, að flytja erindi um líf og starf D. L. Moodv’s
á Prestastefnunni, og var ég svo fávís að lofa þvi. En
timinn var naumur og mörgu öðru að sinna, svo að
ég sá, að )>að v;eri mcr um megn að halda erindi um
slikt stórmenni innan kirkjunnar, en lil þess ekki al-
veg að bregðast loforði mínu, virtist mér að framsetja
fvrir Prestastefnunni fáein „minningarorð“, því að þau
gera ekki aðra kröfu en þá að framkalla í lmgum vor-
um minninguna um þetta útvalda verkfæri Guðs og
vekja þakklæti vort við Guð, sem gefur kirkju sinni
slíka andans menn, og uppörva oss til þess að öðlast
sama áhuga og fórnfýsi i starfi voru fyrir Guðs ríki.
A þessu ári eru liðin hundrað ár frá því er Moodv
fæddist. Haun fæddisl 5. febr. 1837 í Northfield, i rík-
inu Gonnecticut i Bandaríkjum Norður-Ameríku. Hanu
fjekk í skírninni nafnið Dwight Lyman Moodv. í háðar
ættir var hann runninn af hraustum, heilhrigðum kyn-
stofni alþýðumanna. Forfeður hans voru menn „þéttir
á velli og þéttir í lund“; var það fólk fastheldið við
trú og venjur forfeðranna, skyldurækið og samvizku-
samt. Elztu æltfeðurnir í Ameríku voru af Púrítana
stefnu og voru á meðal fyrstu innflytjenda lil Vestur-
heims frá Englandi. Óbifanlegt traust á Guði og siða-
strangleiki voru nær því sameiginlegt einkenni á ætt-
inni.
Þegar faðir Dwights dó, stóð ekkjan einmana uppi
með 9 hörn, sjö drengi og tvær stúlkur, (ill yngri en 12