Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 21
Kirkjuritið.
Dwight L. Moody.
315
lega eru komnir til trúarinnar, að þeir vilja strax fara
að prédika, og finst að þeir geti ekkert starfað, ef þeir
fá ekki strax að tala. En Moodv var i áhuga síinun
hrennandi en auðmjúkur af lijarta; og lét sér þvi nægja
að leiða menn undir áhrif orðsins með því að leiða þá í
kirkju eða á aðrar kristilegar samkomur, og hann gjörð-
ist svo röggsamur í því, að mörgum eldri mönnum í
söfnuðinum, sem hann vann í sem sjálfhoðaliði, ofbauð
ákafi lians, og tvisvar varð hann að sækja um að verða
reglulegur meðlimur safnaðarins og ganga undir próf,
áður en hann fengi upptöku í söfnuðinn. Starf sitt í húð
frænda síns rækti hann með enn meiri áliuga og alúð en
áður. í sínu andlega lífi fékk hann og mikla hjálp i Iv. F.
U. M. og bar hann síðan í brjósti mikinn kærleika til
þeirrar starfsemi.
Það leið ekki á löngu þangað til honum fór að finn-
ast fullþröngt um sig í Boston og flutti hann sig til
Chicago, sem þá var ung borg í hröðum vexti. Það var
haustið 1856, er hann fyrst kom til Chicago, og fjekk
hann þar atvinnu við stórverzlun eina, þar sem miklu
voru betri framtíðarborfur fyrir hann en i Boston.
Hann hafði nú betri peningaráð og' gal því betur kom-
ið ár sinni fyrir borð í áhugamálum sínum. Hans and-
lega starfsemi þar byrjaði með því, að hann valdi sér
kirkju og söfnuð að vera í og vinna fyrir. Það var siður
þar, að menn leigðu sér föst sæti í einhverjum kirkju-
bekk. Moody leigði sér heilan helck og fór svo á sunnu-
dagsmorgnana út á götur og gatnamót og inn í veil-
ingahúsin til þess að fá unga menn til kirkju; hepnaðist
honum að fylla bekkinn, og urðu margir af þessum
kirkjugestum lians stöðugir kirkjugöngumenn. Hann
leigði svo þrjá kirkjustóla í viðbót og liafði þannig sæti
handa 30—40 ungum mönnum. En þetta starf þótli hon-
um hrátt of lítið. Hann fann eitt sinn lítinn sunnudaga-
skóla í hliðargötu og spurði forslöðumanninn, livort
skólinn hefði not fyrir hann. Forstöðumaðurinn kvað