Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 24
318
Friðrik Friðriksson:
Kirkjuritið.
Itreyttu kringumstæðum. Hann fór að starfa fyrir her-
mennina. Iiann fór með járnbrautarlestum, sem fluttu
heilar hersveilir til vígvallanna. Hann starfaði og pre-
dikaði bak við herlínurnar, i herbúðum, í sjúkraskýl-
um, og eftir orustur gekk liann oft í valinn að leita
uppi særða og deyjandi menn. Hann hafði mikil áhrif
bæði á óbreytla liðsmenn, fyrirliða og herforingja.
Moody var á sífeldum ferðalögum á þeim tima og starf-
aði hæði heima og að heiman. Það var erfitt að halda
reglulegar samkomur; fann Moody þá upp á því að hafa
stærri eða minni bænaflokka, og skipuleggja það sem
sérstakt starf; seinna urðu þessir hænaflokkar liður í
slarfi Moody’s, og kom hann þeim á stofn bæði i söfn-
uðum, i sunnudagaskólanum og í K. F. U. M. Moody
starfaði mikið í K. F. U. M. Hann sagði: „Ég trúi af
öllu Iijarta á K. F. U. M. starfið“. K. F. U. M. í Boston
liafði, eins og áður er sagt, orðið honum mikil stoð í
hans nýbyrjaða trúarlífi, og eftir að liann hafði fórnað
sínu tímanlega starfi, varð K. F. U. M. í Chicago hans
eiginlega heimili um langt skeið, þangað til liann kvæntist.
Hann tók þátt í lífi fclagsins og störfum þess á margvís-
legan liátt og lijálpaði þvi einnig með reynsln sinni á f jár-
málasviðinu, en andlega hliðin var samt sú, er liann lagði
megináherzluna á. Hann stofnaði til daglegra bæna-
stunda í félaginu, sem urðu til mikillar blessunar.
A árunum eftir borgarastyrjöldina, 1865—71, var liann
aðalframkvæmdastjóri félagsins, en áhrif hans náðu úl
til fjölda annara félaga í ýmsum borgum í ríkinu, ferð-
aðist hann til þeirra og tók þátt i stórfundum, sem félögin
héldu við og við. — Á einum slíkum fundi kyntist hann
þeim manni, sem seinna varð starfsbróðir og förunautur
á trúboðsferðum hans og hafði hin mestu áhrif. Það
var söngvarinn Sanlcey. Hér er ekki tími til að tala nánar
um þann merkilega mann né um samstarf þeirra. Það
var eins og þessir tveir hoðherar drottins rynnu saman
j eina persónu í meðvitund manna. Moody vitnaði og