Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 26

Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 26
320 Friðrik Friðriksson: Kirkjuritið, Vorið 1871 ránn upp stór reynslutími. Chicago slóð eitt kvöld í ljósum loga; mikill hluti borgarinnar brann til kaldra kola; i þeim hruna hrann kirkjan, sem Moody starfaði sérstaklega við, og' K. F. U. M.-byggingin. Eftir brunann safnaði Moody stórfé til hjálpar hinum nauðstöddu ,og heimilislausu. Sömuleiðis reis hús K. F. U. M. úr rústum, miklu veglegra en liið fyrra, og var það að þakka starfsemi Moody’s. Sérstaklega eftir síðari ferð sína til Englands, sem har enn meiri ávöxt en sú fyrri, varð Moody frægur um öll Bandaríkin. Blöðin á Englandi höfðu svo mikið að segja um miklar vakningabylgjur, sem í sambandi við ferðalag Moodv’s og Sankey’s liöfðu gengið yfir England, Skotland og írland. Jafnvel í sjálfri Lund- únaborg höfðu þessar bylgjur risið liátt; taldist svo til, að um 214 miljón manna hefði sótt samkomur lians. Þegar hann nú kom heim aflur til Ameríku, keptust nær allar stærri horgir um að bjóða honum heim, og var hann nú á sífeldum trúljoðsferðum um endilöng Banda- ríkin og alls staðar vöktu komur hans miklar kristilegar Iiræringar meðal fólksins. Um einkalíf Moody’s er margt að seg'ja, en fram hjá því verðum vér að mestu að ganga í þessum minningar- orðum. Moody kvæntist og eignaðist ágæta konu, sem var miklu mentaðri en hann, og naut hann góðs af mentun hennar og samstarfi; hún var honum alt af undirgefin í ótta Drottins og' dáði hann mjög, varð hjónaband þeirra hið bezta. Þau eignuðusl góð og mann- vænleg börn og voru mjög samhent í því að ala þau upp. Moody kejrpti sér land og bústað á æskustöðvum sínum í Northfield; því að þann blett elskaði hann öllum stöð- um meir, og glaður var hann, þegar hann gat notið næðis þar heima, og' vann þá að heimilisstörfum og garðyrkju og lék sér við börn sín. Samt gleymdi hann ekki erindi Herra síns, þótt sælt væri heimilislifið. Hann stofnaði í Northfield skóla fyrir stúlkur, og' annan skóla

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.