Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 29

Kirkjuritið - 01.10.1937, Side 29
Ivirkjuritið. Vor sál. 323 einni hafði hann sagt nokkuru áður: „Þér munuð einn dag lesa í blöðunum, að D. L. Moody sé dáinn, en trúið því alls ekki; ég verð þá meira lifandi en nokkuru sinni áður. Ég hefi þá flutt úr þessum leirkofa inn í liið eilifa hús. Ég fæddist af holdinu 1837. Ég fæddisl af andanum 1856. Það sem fætt er af holdi verður að dej'ja, það sem af andanum er fætt mun lifa að eilífu. Hundrað ár eru liðin síðan þessi Guðs þjónn fæddist og 38 ár síðan hann dó. Hann lifir nú ekki aðeins í himnin- um, heldur einnig á jörðunni i áhrifum sínum. Mættu þau áhrif einnig ná til vor, þjóna Guðs ríkis í hinni íslenzku kirkju, að vér einnig fyllumst af hinum sama anda og hann, sama ltrennandi áliuga í þjónustu drottins, sama kærleika til Guðs og til þess verks að vinna sálir fyrlr Jesúm Krist, drottin vorn. Ég sá sjálfur hlómlegan ávöxt af starfseminni frá Northfield i Kansas City i Conventionshall 1913 — 31. des. — Þá sátu 5000 stúdentar þar á fundi í sama saln- um, sem Moody talaði síðast í, og glöddust yfir stór- merkjum drottins. Fr. Friðriksson. VOR SÁL. Vor sál er liimnesk harpa helgum Guði frá, vér lifum til að læra að leika hana á. Og þá, sem ljúfast leika j)au lög, sem drottinn ann, við komu dauðans kallar í kóra sína hann. Gunnar Árnason frá Skútustöðum.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.