Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 30

Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 30
Kirkjuritið. SÉRA QUTTORMUR VIGFÚSSON. Hann andaðist að heimili sinu, Stöð í Stöðvarfirði, 25. júni síðastliðinn, 92 ára gamall. Hafði hann legið rúmfastur og verið blindur nokkur síðustu ár æfi sinnar. Ilann var fæddur i Hvammi á Yöllum í Suður-Múla- sýslu 28. apríl 1845, sonur Vigfúsar prests Guttorms- sonar, prófasts í Vallanesi Pálssonar, prests á Valþjófs- stað, Magnússonar lögréttumanns á Brennistöðum, — og Bjargar Stefánssdótlur, prófasts á Valþjófsstað, Árna- sonar, jjrests á Kirkjubæ í Hróarstungu, Þorsteinssonar. Þau séra Vigfús og Björg, kona hans, eignuðust sjö syni, en aðeins tveir þeirra náðu fullorðins aldri, þeir séra Guttormur og Páll cand. phil., hóndi á Hallorms- stað, fyrsti ritstjóri blaðsins „Austra“, dáinn 1884. En hálfbróðir séra Guttorms, samfeðra, er Björgvin fyrv. sýslumaður Rangæinga, og er hann sonur seinni konu séra Vigfúsar, Guðríðar Jónsdóttur, bónda á Gilsá i Breiðdal. — Séra Guttormur ólst upp hjá foreldruni sínum, fyrst í Vallanesi og á Valþjófsstað, þar sem fað- ir hans var aðstoðarprestur, en síðar á Asi í Fellum, er faðir hans hafði fengið veitingu fvrir því prestakalli, og þjónaði liann Asi til 1873. En vorið 1874 andaðist séra Vigfús i Kaupmannahöfn, úr krabbameini. Móðir séra Guttorms andaðist 1861. 17 ára gamalt fór séra Guttormur til föðurbróður síns, séra .Tóns Guttormssonar, sem þá var í Móum á Kjalar- nesi, en síðar prófastur í Hjarðarliolti, og lærði hjá lion- um undir skóla. Gekk svo inn i fyrsta bekk vorið eftir, 18 ára gamall, og varð stúdent haustið 1869 með 2. ein- kunn, en sumarið 1871 útskrifaðist tiann af Prestaskól-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.