Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 35

Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 35
KirkjoritiS. Aðalfundur Prestafélags Islands. 329 frá prestsskap fyr en fjórum árum síðar, því að söfnuðir hans gjörðu sér vonir um það i lengstu lög að fá hann heilan til sin aftur. Vinum hans, hinum mörgu, er það gleðiefni, að veik- indaár hians, löng og ströng, eru nú liðin á enda. Ég hefi fáa menn þekt, sem ég hygg, að taki heilli á móti eilifð- inni heldur en hann. Á. G. AÐALFUNDUR PRESTAFÉLAGS ÍSLANDS. Fundarhöldin. Aðalfundur Prestafélags íslands var haldinn að Hólum, eins og áformaS hafSi veriS, föstudag og laugardag 27.—28. ágúst. Komu Sunnlendingar og fáeinir norSlenzkir prestar kvöldiS fyrir. Fundinn sóttu, auk biskups lands'ins, vígslubisk- r undarsoKn. L1pSjns norSanlands og tveggja guSfræSiskennara Háskólans, 19 prófastar og prestar. Einn þeirra var danskur, séra Regin Prenter frá Hvilsager á Jótlandi. Hann var gestur fundarins. Nokkurar prestskonur sátu einnig fundinn. Formaður félagsins, próf. Asmundur Guð- mundsson, setti fundinn. En fundarstjórar voru kosnir Friðrik Rafnar vígslubiskup, séra Gísli Skúlason og séra GuSbrandur Rjörnsson. Fundarritarar séra Helgi KonráSsson og séra Sveinn Ögmundsson. Morgunbænir og kvöldbænir voru haldnar í kirkjunni. Töluðu þeir við þær séra Björn Magnússon dósent, séra Stefán Kristinsson, biskupinn dr. Jón Helgason, og formaður í fundarlok. , Formaður gaf í fundarbyrjun skýrslu um störf , ^TS a UIP Prestafélagsstjórnarinnar á liSnu ári, afskifti s r ogf ag jlennar af kirkjulegum málum fyrir Alþingi, '’sms* kirkjulegu starfi í úthverfum Reykjavíkur, eink- um Laugarnesskólahverfi, og kristindómsfræðslu barna, útgáfu- starf o. fl. í því sambandi gat hann þess, að Sigurður prófessor Sívertsen vildi ekki teljast lengur ritstjóri aS Kirkjuritinu, þar sem hann sökum vanheilsu hefði ekki getað skrifað í það nokkuð á annað ár. Fór hann nokkurum orðum um það, hversu ágætt starf séra Sigurður hefði unnið bæði fyrir KirkjuritiS og PrestafélagsritiS áður,' og tóku fundarmenn undir það með því að standa upp.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.