Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 37

Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 37
Kirkjuritið. Aðalfundur Prcstafélags íslands. 331 uSuní, lærðum, víðsýnum og skilningsgóðum kennimönnum, sem kunni tök ó að ná til hjartna fjöldans, ekki einungis í prédikunarstól og fyrir altari, lieldur líka á stéttunum. Fram- tíðin mun heimta af íslenzku prestunum, að þeir verði forystu- menn á sviði andlegra félagsmála, er heri trúnni samboðinn á- vöxt með lýtalausri breytni, og skari fram úr að göfuglyndi, orðsnild og kærleiksríku hugarfari. Vér jmrfum áfram að eiga þá menn í prestsstöðu, sem þjóðin iítur upp til vegna lærdóms, góðgirni, mannkosta og hispurslausrar baráttu fyrir sannleika, drenglyndi og réttlæti í hverju máli. Mentuð, viðsýn prestastétt er því markmið félagslegra sam- taka vorra. Þegar horft er til þeirra félagslegu samtaka, sem myndast hafa nú á síðari áratugum innan prestastéttar Islands, þá verð- ur ekki annað sagt en að þar sé um stórfeldar framfarir að ræða. Prestastefnan, sem áður var samkoma presta í Kjalar- nesþingi undir forsæli biskups, er nú orðin prestastefna fyrir alt landið og oft fjölsótt. Prestafélag íslands nær til allra presta landsins, og sérstakar deildir i ])vi eru i landsfjórðungunum. — En er þá ekki takmarkinu náð? Ég er ekki þeirrar skoðunar. Vér lifum á samvinnuöld og vér boðum samhug og samstarf, „allir eiga þeir að vera eitt, eins og þú faðir erl í mér og ég í þér, eiga þeir einnig að vera í okkur“, Jóh. 17. 24. — Vér boðum guðsrikið, og því er eðlilega gjiirð sú krafa til hinnar islenzku prestastéttar í heild sinni, að þar riki eining, friður, einlægni og samvinnuhugur. Hvernig getum vér aukið þann félagsanda? Ekki með því að fjölga fundum frá þvi, sem nú er — en með því að fjölmenna á fundina og haga þeim svo, að þeir geti orðið sem uppbyggilegastir. I þessu sambandi vil ég geta þess, að ég hygg að stundum hafi verið ofhlaðið á fundina erindaflutningi og skýrslugjörðum, en minni tími hafi unnist til persónulegs samtals, viðkynningar, hljóðra bænastunda og söngva, getum vér i þessum efnum eitt- hvað lært af Oxfordstefnunni nýju. Þá vil ég nefna, hvort ekki væri tiltækilegt, að prestar innan hvers prófastsdæmis kæmu oftar saman hver á annars heimil- um en alment tíðkast. Þá virðist mér sú nýlunda góð til eflingar félagsanda meðal vor prestanna, að senda tvo presta, eða leikmann og prest, saman nm ókunna landshluta til prédikunar. Get jeg af eigin raun borið vitni, að slikt samstarf eflir mjög* persónulega viðkynningu hlutaðeigandi ferðapresta og þeirra presta, sem heim eru sóttir.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.