Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 38
332
Aðalfundur Prestafélags íslands. KirkjuritiÖ.
Vér lifuni á umróta og breytingatímuni. — Þjóð vor er að
breytast. - Gamlar lífsvenjur að hverfa, en nýjar í uppsiglingu.
Mikið ríður á, að prestarnir skilji nú köllun sína, skilji herhvöt
hins nýja tíma.
Eldri bóndi í Strandasýslu, sem átti tal við mig um kirkju
og kristindóm, sagði við mig eitthvað á þessa leið: „Við Stranda-
menn óskum eftir, að prestarnir prédiki á stéttunum“ — svo
þagði hann og hætti síðan við: „Ég þekti nýlátinn prest, sem
var svo höndlaður af Kristi, að yfir ásjónu hans lýsti friður og
innri gleði, við urðum betri menn, ef hann var í návist okkar. —
Sendið okkur slíka presta, jjá mun kirkjan njóta álits, þá mun
æskan læra að ganga á guðsvegum“.
Hér var sýndur fyrirmyndarprestur — eftir gömlum og nýjum
mælikvarða. Hér mætist hið gamla og nýja. —
Hvað gefur æskan glaða og tápmikla mest fyrir? Eftir hverju
sækist hún? Hver móðir myndi ekki geta svarað |>ví: Eftir
sannri gleði. Hvar finnur æskan varanlegri, hollari og hetri
gleði en i samvistum við j>á karla og konur, sem eiga lunderni
Krists, eru höndluð af honum. Alt ber að sama brunni, vér þrá-
um ölt, gömul og ung, að lifa lífinu í kærleiksfullkomnun Krists,
eignast hinderni hans og hvílast við hjarta Guðs.
Hinn eini tryggi samvinniigriindvölliir er því drottinn Jesús
Kristur, svo sem hann birtist oss í guðspjöllunum, breiðir
faðm jafnt móti brosandi barni sem gráhærðum öldungnum
— allir eigum vér að verða eitt í hönum — til hans hnígur vor
insta l>rá.
Formaður las því næst upp nokkur orð frá heiðursforseta
Prestafélagsins, en j>au voru á þessa leið:
Nokkur atriði um samstarf presta, sem undirrituðum þykir sér-
stök ástæða til, að lögð sé rík áherzla á:
I) Að prestar séu samtaka um að fegra guðsþjónustur safn-
aðanna og beina þeim sem mest til lofgjörðar og tilbeiðslu, i þá
átt, sem nýjasta helgisiðabók vor stefnir að.
II) Að prestar leggi sem mesta rækt við húsvitjanir og reyni
af fremsta megni að gjöra þær sem andlegastar. Sérstaklega virð-
ist nú þörf á að leiðbeina foreldrum með alt, er varðar trúar-
legt og siðferðilegt uppeldi barna þeirra, og að guðræknisstund
sé á heimilunum í sambandi við húsvitjanir prestanna.
III) Að prestar beiti sér fyrir því i sameiningu, að koma á
fót safnaðarfélagsskap eins viða og unt er, með 'því markmiði,
að ná með kristileg áhrif til æskunnar, til fullaldra fólks og
aldraðra, og efla starfsemi kirkjunnar á sem víðtækastan hátt.