Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 39

Kirkjuritið - 01.10.1937, Blaðsíða 39
Kirkjuritið. Aðalfundur Prestafélags íslands. 333 IV) Að prestar styrki og efli persómileg áhrif stéttarbræSra sinna, bæði með því að l'orðast að gjöra lítið úr störfum þeirra og framkomu, og einnig, og ekki síður, með því að hjálpa þeim eftir megni i öllu, er lýtur að þjónustu orðsins og mannúðar- starfsemi og hverju því, er til góðs má leiða. Þessum ófullkomnu bendingum er beint til aðalfundar Presta- félags íslands á Hólum 1937, með kærstum kveðjum til allra fundarmanna, og með þeirri einlægu bæn, að þeir fyrir kraft frá hæSum megi ávalt vera með öruggum huga og treysta Guði í bliðu sem striðu. MeS bróðurhug Sigurður P. Sívertsen. Fundarmenn þökkuðu þessi vinarorð með því að senda símskeyti: PrestafjelagiS sendir heiðursforseta sinum þakkir, kveðjur og árnaðaróskir. GuS blessi þig og ávöxt starfa þinna fyrir kristni og kirkju landsins. FormaSur flutti einnig erindi um samvinnu presta og lagði megináherzlu á það, aö náin andleg samábgrgö vœri í milli prestanna, þannig, að þeir mynduðu einn sla'rfsmannaflokk, sem gnni aff eflingu kristni alls landsins, en ekki aðeins hver í sinum reit. Þeir bæru ábgrgð meiri og minni hver á annars starfi, og ættu að vera jafn fúsir til að þiggja og vei.la hjátp. Næstur flutti séra Regin Prenter erindi, langt og fróðlegt, um samvinnu presta í Danmörku. AS lokum var samþykt þessi fundarályktun, er formaður og frummælandi báru fram: Aðalfundur Prestafélagsins skorar á alla presta landsins að efla sem mest samvinnu sín í milli og bendir í því sambandi á þessi atriði: 1) Prófastar kveðji presta á fund til sin 1 —2 daga a. m. k. 1 sinni á ári. 2) Prestar skiftist um að messa hverir hjá öðrum svo oft sem því verður við komið. 3) Prestar vinni sem bezt að undirbúningi heima fyrir undir komu þeirra manna, sem sendir verða um landið til eflingar kristnilífi þjóðarinnar. 4) Prestarnir vinni saman að eflingu Kirkjuritsins með þvi að senda því greinar eða stutta kafla úr prédikunum sínum. 5) Að loknum aðalfundi ár hvert, verði þess kostur, að prest- ar og kennarar guðfræðideildar eigi saman lengri dvöl, ef þeir óska.

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.