Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 42
336
Aðalfundur Prestafélags Islands. Kirkjuritið.
leiðbeinir. Enda eru þeir mjög auðlærðir og einfaldir. Myndi það
vafalaust verða guðsþjónustulífi þjóðarinnar til mikillar efiingar,
ef unt yrði að hafa nýja guðsþjónustuformið um hönd alstaðar
á landinu. Þyrfti það helzt að verða á næstu árum. Á fund-
inum var því þessi tillaga samþykt:
Fundurinn beinir þeim tilmælum til kirkjustjórnarinnar, að
söngfróður organleikari verði sendur um landið til þess að
stofna söngflokka í söfnuðum og kenna þeim nýju messusvörin.
Aðrar sámþyktar tillögur voru þessar:
Aorar tillogur. | Fundurinn beinir þeim tilmælum til Al-
þingis, að það láti lögin um Prestakallasjóð koma til fram-
kvæmda nú þegar.
2. Fundurinn skorar á presta, sem eiga sæti í skólanefnd-
um eðá barnaverndarnefndum, að vinna að sem mestum fram-
kvæmdum í anda barnaverndarlaganna og neyta m. a,, bág-
stöddum börnurh til þroska, réttarins til fjárframlags úr sveitar-
sjóðum eða bæjarsjóðum, er ekki skal reiknast framfærslustyrkur
til foreldranna.
3. Að gefnu tilefni felur fundurinn stjórn Prestafélagsins að
grenslast eftir því, hvort fyrirmælum laga um hýsingu prests-
setra um hómark afgjalds af lánum til endurbygginga eða við-
gerðar prestssetra sé fylgt, og reynist svo ekki, að gera ráðstaf-
anir til þess', að því verði kipt í lag.
4. Fundurinn lýsir eindregnu fylgi við samþyktir Þingvalla-
fundarins um bindindismál.
Kosning
stjórnar og
endurskoðenda.
í lok fundarins fóru fram kosningar á stjórn
félagsins og endurskoðendum. Voru allir end-
urkosnir. Stjöfnina skipa því nú:
Prófessor Ásmundur Guðmundsson, form.
Séra Árni Sigurðsson.
Séra Bjarni Jónsson, vígslubiskup.
Séra Friðrik Hallgrímsson.
Prófessor dr. Magnús Jónsson, ritari.
Endurskoðendur eru:
Séra Kristinn Daníelsson, præp. hon.
Séra Þorsteinn Briem, prófastur.
, í sambandi við fundinn flutti séra Benjamín
m nm g Kristjánsson erindi um Guðmund biskup Ara-
Guömundar son hinn góöa, en á þessu ári eru liðnar sjö
^°®a* aldir frá dauða hans. Erindið var flutt í dóm-
kirkjunni sunnudaginn 29. ág., og mun það birt í næsta hefti
Kirkjuritsins.