Kirkjuritið - 01.10.1937, Síða 43
KirkjuritiS.
Innlendar fréttir.
337
Veran á
Hólum.
Samverudagarnir á Hólum voru öllum fund-
armönnum til mikillar ánægju. Bar margt til
jjess. Fundurinn þótti takast vel og auka mjög
á kynningu. Tign og fegurð staðarins, kirkjan og helgi sögu-
minninganna hrifu hugin. Og viðtökur skólastjórans, Kristjáns
Karlssonar, og annara heimamanna voru svo ágætar á allan hátt,
að það var alveg eins og menn ættu „heima að Hólum“ þennan
tíma. Vll Kirkjuritið þakka gestrisni þá og alúð, sem öllum
var sýnd.
Á. G.
INNLENDAR FRÉTTIR.
Lausn frá prestskap
hefir séra Matttiias Eggertsson í Grímsey fengið l'rá 1. þ. m. að
te.lja. Hann mun hafa verið lengst allra presta í Grímsey, sam-
tals 44 ár. Myndi hann hafa orðið júbilprestur á næsta vori,
hefði hann þjónað þangað til.
Prestskosningar.
í Stafholtsprestakalli var séra Bergur fíjörnsson kosinn prest-
ur, en í Glaumbæjar séra Trgggvi Kvaran.
Prestsvígslur.
Gísli Brynjólfsson guðfræðiskandídat hefir verið settur prest-
ur í Kirkjubæjaklaustursprestakalli í Vestur-Skaftafellsprófasts-
dæmi frá 1. þ. m. að telja. Hann var vigður til prests 19. f. m.
Eirikur J. Eiríksson guðfræðiskandídat hefir ráðist aðstoðar-
prestur til séra Sigtryggs Guðlaugssonar á Núpi í Dýrafjarðar-
þingum, og tók hann prestvígslu 10. þ. m.
Séra Sigtryggur Guðlaugsson prófastur
átti sjötíu og fimm ára afmæli 27. f. m., og var honum sýndur
margskonar sómi j)ann dag og fluttar þakkir fyrir langt og frá-
bærlega gott starf í þágu kirkju og skóla. Gamlir nemendur
Núpsskóla færðu honum að gjöf vönduð útvarpstæki.
Kosning í kirkjuráð.
Atkvæði við kirkjuráðskosningu voru talin 6. þ. m., og féllu
þau þannig: Af prestum og kennurum guðfræðideildar voru