Kirkjuritið - 01.10.1937, Page 44
Innlendar fréttir.
KirkjuritiS.
338
kosnir þeir Ásmundur Guðmundsson prófessor með 50 atkv.
og séra Þorsteinn Briem prófastur með 38 atkv. Næstur honum
var Björn Magnússon dósent, sem fékk 8 atkv. Ennfremur til-
nefndu 17 héraðsfundir kirkjuráðsmenn, og hlutu þessir kosn-
ingu: Ólafur fíjörnsson kaupmaður á Akranesi, sem fékk 146
atkv. úr 17 prófastsdæmum, og Gisli Sveinsson ’sýslumaður, er
hlaut 79 úr 10 prófastsdæmum. Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður var næstur með 63 atkv. úr 9 prófastsdæmum.
Utanfarir guðfræðiskandídata.
Guðfræðiskandídatarnir Jóhann Jóhannsson og Jóhann Hann-
esson fóru utan í sumar sem leið til þess að stunda framhalds-
nám í guðfræði. Fengu þeir báðir til þess nokkurn styrk frá
Háskólanum. Hinn fyrnefndi mun dvelja á Norðurlöndum, en
hinn siðarnefndi að líkindum í Sviss og á Englandi.
Sigurbjörn Einarsson
hefir nú lokið kandídatsprófi í heimspeki við Háskólann i
Stokkhólmi, eftir 4 ára nám við Uppsalaháskóla. Hlaut hann
mjög góða einkunn, m. a. ágætiseinkunn í trúbragðasögu, fyrir
ritgjörð um hugmynd Grikkja um dánarheima og ódauðleika.
Hann er kominn heim og kennir trúbragðasögu við Kennaraskól-
ann, jafnframt stundar hann guðfræðinám við Háskólann.
Á. G.
Frá Siglufirði.
Kristilegu starfi meðal sjómanna hefir verið haldið uppi á
Siglufirði í sumar, yfir síldveiðitímann, eins og að undanförnu.
Hefir norska sjómannatrúboðið annast starfið meðal erlendra
sjómanna, en Jóliannes Sigurðsson meðal íslenzkra. Hafa marg-
ir notið góðs af þessu starfi nú eins og að undanförnu. Fór það
fram með sama hætti og verið hefir og áður hefir verið lýst í
Kirkjuritinu. Engum sem til þekkir blandast hugur um þörf-
ina á slíku starfi yfir síldveiðitímann, og fer sú þörf mjög vax-
andi. J. Sigurðsson hefir synt mikla fórnfýsi í þessu starfi, en
hann hefir nú starfað á Siglufirði í 9 sumur samfleytt.
Ó. J. Þ.
Sökum rúmleysis verða margar greinar að bíða næsta heftis
Kirkjuritsins, m. a. um merka kirkjulega viðburði hæði hér á
landi og erlendis.
Kirkjuritið kenmr út 10 sinnum á ári — alla mánuði ársins nema
ágúst og septembermánuð — um 26 arkir alls og kostar kr. 5.00
áigangurinn. Gjalddagi 1. apríl — og 1. okt., ef menn kjósa held-
ur að borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast séra
Helgi Hjálmarsson, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavík.