Kirkjuritið - 01.05.1939, Side 14
188
Hálfdán Helgason:
Maí.
guðsþjónustan sem heild og út frá þessum sannleika ber
að skilja hvern einstakan licS hennar. Á grundvelli þessa
meginsannleika á að opna augu almennings fyrir tilgangi
helgisiða og sakramenta, bænaflutninga, lestrar Guðs orðs
frá altari og prédikunarstól, prédikunar og sálmasöngs.
Og þá munu opnast augu margra fyrir því, að það er ekki
veik og ófullkomin prédikun prestsins, sem er þungamiðja
guðsþjónustunnar, heldur er þar um veigaminsta þáttinn
að ræða, liitt sé þýðingarmest, það sem Guð sjálfur talar
við manninn í sínu heilaga orði, sakramenti, svo og fyrir
návist heilags anda lians. Hver sá, sem skilur það, að hver
einstakur liður guðsþjónustunnar á að hjálpa honum til að
lifa i návist frelsara síns og drottins Jesú Krists, liann
mun kosta kajips um það að missa ekki af neinu því, er
fram fer. En þá er komið að hinu skilyrðinu fyrir því, að
þeir, sem kirkju sækja, dvelji þar sér til gagns: Almenn-
ingur verður að læra að verða starfandi í guðsþjónust-
unni. Alt of margir eru óvirkir (passivir) hlustendur og
áhorfendur, sem ætla það, að presturinn einn eigi að vera
að verki. Þessu þarf nauðsynlega að breyta þannig, að
liver sá, er guðsþjónustu sækir, verði virkur (aktiv) þátt-
takandi, sem lætur leiðast af prestinum, eu að öðru leyh
tekur sjálfstæðan og virkan ])átt í hverjum lið guðsþjón-
ustunnar. í kirkjunni á hugur og lijarta hvers einasta
manns, ungs og gamals, sífelt að vera að verki. Hver.pi
bæn, sem flutt er, þarf hann að gera að sinni bæn. Hvern
sálm, sem sunginn er, á hann að tileinka sér, sem vseri
liann þar sjálfur að tala, og um fram alt má engmn
kirkjugestur gleyma því, að hvert orð, sem í guðsþjon-
ustunni hljómar, hvorl heldur í pistli eða guðspjalli fra
altari, eða texta frá ræðustól, er talað beint til lians frá
Guði sjálfum. í guðsþjónustunni er Guð sifelt að tala við
manninn, og þar á maðurinn sífelt að vera að lilýða á Guð
og tala við Guð. Guðsþjónustan er þannig í eðli sinu
samstarf milli Guðs og mannsins. Hjá þeim einum, sem
á þennan skilning á guðsþjónustunni og verður virkm