Kirkjuritið - 01.06.1940, Blaðsíða 5
KirkjuritiS.
Við orf og altari.
203
ágúsl — og jeg er strax farinn að kvíða liinni ljóslausu
glóru nóyemberdagsins! Ef til vill er það óþarfi. Ef lil vill
verður 10. nóvember unaðslegur dagur með breinviðri og
heiðríkju og silfraðri jörðinni, blikandi í smágerðri dýrð
hrimsins gegn ægitign geimsins. Hversu fögur eru ekki
kvöld slíkra daga, þegar biminn og jörð brjótast úr greip-
um skammdegisörlaganna, jörðin sviftir af sér nálijúpi
haustþokunnar og vefur sig í töfraslæðu lirímsins, brosir
gegn lýsandi liátign himintunglanna, og þau skoða mynd
sína i brimglitinu?
Þá göngum við út og gleymum því, að það er haust,
skammdegi. Ivyrðin er djúp, dýpri fyrir þungan öldunið-
inn, sem berst utan úr víkum og vogum, vakinn af fjar-
lægum stormi eða eftirköst ofsans, sem geysaði í fyrradag.
eða beygur við næstu hrynu. Það er eittbvað ógnum fylt
við sjávarnið í nóvember, mannsbarnið, dýrið, sem lagði
undir sig sjóinn, titrar, höfuðskepnan er þrátt fyrir alt
levndardómsfull og ægileg, blind og hamslaus. Þessi þungi,
djúpi niður, sem hefir úthafið að baki sér! Án hans mynd-
um við ekki muna eftir því á svona kvöldi, að við erum
umflotin ógnum í ríki náttúrunnar. Þessi djúpi, sogandi
niður! Drengurinn, sem nú er að verða fullorðinn, befir
þennan nið, sjávarhljóðið við Meðallandssand, í eyrunum
og losnar aldrei við hann. Atlantshafið! Hvenær sem var
gat það safnað í eitt sínum heljarkröflum — nei, þess
þurfti ekki, því var nóg að rétta út litla fingurinn á trölls-
lirammi sínum og afmá alla sveitina, þessa lágu lok-
sandsflatneskju sunnan undir fjöllunum og hraununum.
Þýðingarlaus atburður i jarðsögunni, jarðfræðingarnir
myndu ekki einu sinni geta séð það i framtíðinni, þcir
yrðu að lesa um það og gætu líklega gert það, því að mað-
urinn, — sem er mælikvarði alls, eins og Protagoras gamli
sagði, — myndi telja jjetta til atburða og færa í annála
— það fórust enda menn og skepnur. Atlantsbafið annars-
vegar og Katla, Laki binsvegar! Var það undarlegt, þó
að maður gæti stundum legið vakandi í nóvembermyrkr-