Kirkjuritið - 01.06.1940, Síða 38
Þorsteinn Briem:
Júní.
236
sálm lians, „Hin í'egursta rósin er fundin", um 3 vers frá
því, sem liann er í vorri sl). og mun liver, sem atlmgar,
telja sálminn hæði fegurri og heilsteyptari eftir þá stytt-
ingu. Mun fáum skáldum sú list gefin, að geta strikað
nægilega milcið út, af því, sem í hugann hefir komið, þang-
að til fullsorfið er.
í sáhnum, er lil mála gæti komið að sleppa úr sb.,
eru viða ágæl einstök vers, er gætu hætt úr þörf á fleiri
versum eða stuttum sálmum, til söngs milli pistils og guð-
spjalls, svo og þegar stvtta verður söng, vegna ónógra
söngkrafta, eða af öðrum ástæðum. Einstök fögur vers eru
og ekki síður numin og lmgfest í einrúmi en langir sálmar.
En af því, hve hér er margs að gæta, á hér ekkert óða-
got við. Vandvirk endurskoðun sb. verður seinunnið verk.
Þess mun meira að segja tæplega að vænta, að vel takist
um svo vandasamt verk, sem endurskoðun sálmabókar
vorrar, nema 1. útgáfan að minsta kosti verði aðeins gef-
in úl sem sýnishorn.
Svíar hafa nú nýlokið endurskoðun sálmabókar sinnar.
Tók bún langan tíma, enda birtu þeir margar sýnisútgáf-
ur, söfnuðum og prestum til athugunar. En á hverri sýn-
isútgáfu voru miklar breytingar gerðar, þangað til hin
nýja sb. var samþykt af kirkjuþingi til löggildingar að
síðustu.1).
)) Svíar höfðu búið að sálmabók Wallins frá 1819. Þó var
Söderblom, erkibiskupinn nafnfrægi, ekki bráðtátari en svo, að
þegar 3. sýnisútgáfan var út komin, vildi hann ekki þá þegar
gefa út nýja sálmabók, hetdur aðeins viðbæti. Höfðu þá 5 valdir
sálmafræðingar unnið að verkinu, þ. á. m. biskuparnir Gottfrid
Billing og Eklund sálmaskáld, höfundur sálmsins „Fadernas
kyrka“, er aðrar þjóðir öfunda Svia af. Söderblom vitdi, að efn-
ið væri gjörkannað, m. a. með því, að reyna lífsmátt nýrra sálma
þann veg að gefa þá fyrst út í sálmabókarviðbæti, áður en þeir
væru teknir inn í sjálfa sálmabókina. Söderblom naut stuðnings
ýmsra merkra mentamanna, og var farið að ráðum hans. En svo
vandtátur var hann fyrir hönd sjálfs sin og samnefndarmanna