Kirkjuritið - 01.06.1940, Side 41
Kirkjuritið.
Innlendar fréttir.
Embættispróf í guðfræði
tóku í lok fyrra mánaðar Árelíus Nielsson frá FirSi í Múlasókn
og Stefán V. Snævarr frá Neskaupstað. Báðir hlutu I. einkunn,
Árelíus 125% st. og Stefán 105 st.
Prestsvígsla.
Sunnudaginn 9. þ. m. vígði biskup landsins prestvígslu þá
guðfræðikandidatana Árelíus Níelsson og Björn Björnsson. Þeir
eru báðir settir prestar, Árelius í Hálsprestakalli í Suður-Þing-
eyjarprófastsdæmi, en Björn í Viðvíkurprestakalli í Skagafjarð-
arprófastsdæmi.
Almennum kirkjufundi frestað.
Vegna J)ess ástands, sem nú ríkir, hefir undirbúningsnefndin
ákveðið að fresta fundinum um óákveðinn tíma. Var það samróma
álit nefndarinnar og þeirra yfirleitt, sem hún átti tal við um
fundarhöldin. Aðrir fundir, sem auglýstir voru í síðasta hefti
Kirkjuritsins, munu verða haldnir.
Gjöf til guðfræðisdeildar.
Ásgeir Bjarnþórsson listmálari hefir gefið guðfræðisdeild Há-
skólans stóra mynd af Haraldi prófessor Níelssyni. Hann hefir
sjálfur málað myndina, og er hún mjög lík og prýðisvel gerð.
Prestskosning.
Séra Helgi Sveinsson liefir verið kosinn prestur i Arnarbælis-
prestakalli og hlotið veitingu fyrir því frá fardögum.
Magnús Már Lárusson stud. theol
hefir verið settur til læss að annast nokkura prestsþjónustu nú
i sumar i StaðarhólsJjingum í Dalaprófastsdæmi.
Dómkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
hefir samþykt að taka við Dómkirkjunni til eignar og umráða
samkvæmt nýju lögunum um J>að frá AlJjingi,