Handbók fyrir hvern mann - 01.01.1906, Blaðsíða 52
52
Tímatal.
Old er 100 ár. Ár venjulegt er 365 dagar, en
hlaupár 366 (hlaupár er þegar 4 ganga upp I
ártalinu, nema aldamótaárin þegar 400 ganga
upp). Árið er 13 tunglmánuðir á 4 vikur eða
52 vikur. Við rentureikning er árið oft reiknað
12 mánuðir á 30 daga = 360 daga.
1 vika er 7 dagar (sólarhringar) á 24 stundir
á 60 mínútur (') á 60 sekúndur (").
Einnig er sólarhring, eða degi og nóttu saman,
skift í 8 eyktir eða dagsmörk á 3 stundir. Eykt-
irnar heita: Ótta (fyrr talið frá kl. l'/i—V/i, nú
3—6 árd.), miður morgun (fyrr kl. 4l/-i—lljt, nú
6—9 árd.), dagmál (fyrr kl. l'/i—W/i árd., nú
9 árd.—12 á hád.), hádegi (fyrr kl. ÍO'/i árd.—V/i
siðd., nú 12 á hád.—3 síðd.), nón (fyrr kl. l'/i
—4l/a, nú 3—6 siðd.), miðaftan (fyrr kl. 4l/i—
7»/», nú 6—9 síðd.), náttmál (fyrr kl. l'/i—W/i
síðd., nú 9—12 á miðn.) og miðnætti (fyrr lO'/i
síðd.—V/i árd., nú 12 á miðn,—3 árd.).
Almanaksmánuðir liafa: janúar 31 dag, febrú-
ar 28 d. (eða 29 þegar lilaupár er), marz 31,
apríl 30, maí 31, júní 30, júlí 31, ágúst 31, sept.
30, okt. 31, nóv. 30 og des. 31 dag.
Stjörnudagur er timi sá sem fer til eins
snúnings jarðarinnar.
Sólardagur er timinn milli þess sem sól er
í liásuði og er nærri 4' lengri en sljörnudagur.