Framtíðin - 01.05.1909, Síða 1

Framtíðin - 01.05.1909, Síða 1
2. árg. || WÍNNiPEG, Maí 1909 || 3. tölubl. Undir lekann í tíma. II. íðast var minst á það, hvað foreldrarnir ísl. ættu fyrst og fremst að gera, til þess að börnin þeirra týni ekki íslenskunni, hvernig þau ættu að setja •undir lekann í tíma með því að tala íslensku við þau. Og liggur það ekki opið fyr- ir? Er það ekki kæruleysi eða for- dild einhver, ef þau gera það ekki? Eða ef til vill skortur á þjóðernis- legri sómatilfinning? Okkur þykir sómi að því að vera Islendingar. En þá eigum við að kannast við það, ekki að eins í orði, heidur líka í verki. Við verðum að sýna á okkur göfugasta merkið, ís- lenskuna, en ekki láta afmá það. Við megum aldrei verða afmarh- aðir Islendingar. En við látum greinilega afmarkast, ef við látum íslenskuna berast fyrir borð. Ef það á ekki að verða, þá þarf að setja undir lekann í tíma, hugsa um börnin og unglingana, og ger v alt sem unt er fyrir þau þjóðernis- lega. Við þurfum að kenna þeim íslensku. Það er ekki nóg að við tölunx við þau íslensku og komum þeim til þess að tala við okkur íslensku. Við verðum líka að kenna þeim að lesa málið svo, að það verði þeirn engin þvingun að gera það. Við getum þetta. Það er víst og satt. Við kennum börnunum mús- ík og að spila á liljóðfæri. Það kostar töluvert. En við viljum það. Og svo reynum við að gera það. Ef við getum það ekki sjálf — og þeir eru fæstir, sem geta það, þá útvegum við kennara handa' þeim. Og það er gott. En því þá ekki xítvega börnunum kennara í ísl. lensku? Ætti það að vera nokkuð erfiðara? Alt er undir okkur foreldrunum komið, undir því, hvernig við lítum á það og hvað mikils virði það er okkur að börnin læri íslensku.

x

Framtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framtíðin
https://timarit.is/publication/460

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.