Fríkirkjan - 01.09.1901, Page 3

Fríkirkjan - 01.09.1901, Page 3
147 Með því þessi heiðraði höfundur er mjög glöggur maður og mjög mikill áhugamaður um málefni kristindómsins, þá gjörum vér ráð fyrir að mörgum muni forvitni á að lesa það, sem hann skrifar um þetta efni. Það er mælt, að „glöggt er gests augað", og tír því hann, sem var gestur hér á ættjörðu sinni, fór að rita lýsingu á íslandi um aldamótin, þá má nærri geta, að hann hefur ritað það eitt, er hann hugði sannast og réttast, ekki síst um kirkjuna og ásigkomulag kristindómsins í landinu. Vér látum ntí blað vort flytja lesendunum það sem oss virðist markverðast af því, sem séra Friðrik ritar í þessum kafla bókar sinnar. Hann byrjar á því, að geta um trúarsamtalsfundinn, er haldinn var í Reykjavík, áður enn þeir séra Jón Bjarnason hurfu aptur heim á leið. Telur hann, að það mundi mjög auðvelt að hafa slika fundi tíða í Reykjavík að vetrinum og koma miklu góðu til leiðar með þeim. „Og á því er hin brýnasta þörf“ heldur höf. áfram. „Þyí yfir kirkjulífinu á íslandi hvilir svefn og doði, og lítið eða ekkert er gjört til að fá því breytt. Ekkert, sem um það hefur verið sagt, held eg sé oftalað. Um það sannfærðist. eg á þessari ferð minni. Eg finn að minnsta kosti ekki ástæðu til að taka neitt af þvi aptur, sem ég hefi áður um það talnð, og mundi eg þó hjartans feginn hafa gjört það, ef eg hefði sannfærzt um, að orð mín hefðu engan stað átt sér.“ Það telur höf. mjög einkennilegt við kirkjulega ástandið, að menn vilji heyra um kristindóminn talað. Menn finni til þess, að ástandið sé öfugt eins og það er. f*að sé eins og menn bíði, — standi með öndina í hálsinum og bíði eptir því, að einhver lífsins gustur komi tír einhverri átt — eitthvert vekjandi orð, sem öllum megi að hjálpræði verða. Síðan minnist höf. á hina bágbornu kirkjusókn og altaris- gönguleysið. — Þá segir hann, að alvarlegt fólk kvarti víða um, að íermingarundirbúningi af prestanna hálfu hafi stór- um farið aptur, síðan barnakennarar urðu almennari. Segir hann, að heilmargir af þessum barnakennurum séu algjörlega horfnir frá kristindóminum, bæði leynt og ljóst, og telji það úrelta heimsku að vera að troða honum að börnunum, en

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.