Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 4

Fríkirkjan - 01.10.1901, Blaðsíða 4
164 þjóðinni að meta kristindóminn væri það, að svipta burtu þess- um ríkisrekkjuvoðum öllum saman, sem kristindómur þjóðar vorrar hefur verið svæfður í, en snúa sér til hins kristna lýðs í landinu og segja: „Nú getið þér kosið um, hvort þór viljið halda uppi kristilegum fólagsskap, eða ekki. En ef þér viljið það, þá verðið þér sjálfir að leggja allt fram, sem til þess þarf. Ríkið annast þetta ekki lengur. Ríkið hefur hingað til lagt allt upp í hendurnar á yður, en það hefur ekki verið til neins annars enn ala upp í yður afskiptaleysi og ónytjungsskap. Nú verðið þér að reyna að rísa úr fletinu og hrista af yður mókið, sem á yður hefur runnið." Vér erum alveg hissa á því, hvernig hinn heiðraði höf- undur skrifar um fríkirkjuhreifingarnar á landi voiu. Hann, fríkirkjupresturinn í fríkirkjunnar landi, virðist líta hornauga til þeirra hreifinga, sem hér liafa komið fram í þa hina sömu átt. Hann talar alls ekki um þær eins og alvörugefinn krist- inn maður ætti að gjöra, og á því furðar oss allra mest. — Hann hefur í vorri áheyrn og margra annara manna talað um fríkirkjuhugsjónina sem þá göfugustu félagshugsjón, sem uppi sé í tímanum og unnt sé að helga krapta sina. Er það nú sami maðurinn þetta eins og sá, sem hér hefur ekki úr öilu sínu mikla orðasafni önnur virðulegri orð að velja þeim mönn- um, er hór á landi vilja heiga þessari hugsjón krapta sína, enn að tala um „uppþot“ og að „hrófla upp svoneíndum frí- kirkjusöfnuði" ? Vér verðum einnig að gjöra athugasemd við það, er hann segir, að hver prestur, sem vill, geti komið fólkinu í uppnám. Það er rótt eins og hann haldi, að prestarnir hafi hér verið að gangast fyrir myndun fríkirkjusafnaða; en vér getum frætt hann um það, að oss vitanlega hefur enginn prestur gjört það. Vór skulum ekkert um það segja, hvað þeim hefði getað tekizt í þessu eftii, ef þeir hefðu reynt það. Það getur vel verið að það þurfi engan sérstakan garp til þess, eins og höf. segir; en sem sagt, það hefur alls ekki reynt á þennan garpskap hjá prestunum. Höf. tekur það sjálfur fram, að „uppþotið" í Reykja- vík hafi orðið „nokkurn veginn af sjálfu sér, án þess að séra Lárus Halldórsson, sem síðar gjörðist prestur þess úrgengna

x

Fríkirkjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.