Fríkirkjan - 01.10.1901, Side 12
172
Klóa stóð kvíðafull á svip og horfði fram fyrir sig.
„Veslings Klóa frænka!“ sagði Georg, og tók utan um
hörðu, dökku hendurnar hennar, „eg hefði viljað gefa aleigu
mína til að geta komið með hann með mér, — en hann er
farinn til betri heimkynna“.
Frú Shelby hrópaði upp yfir sig, en Klóa sagði ekkert;
hún sneri sér undan og ætlaði út úr herberginu. Frú Shelby
gekk hægt á eptir henni, tók i aðra hönd hennar, ieiddi hana
með sér að stól, lét hana setjast og settist hjá henni.
„Veslings, góða Klóa mín!“ sagði hún. Klóa lagði höfuð-
ið að öxl húsmóður sinnar og sagði með þungum ekka: „0!
missus, missus, hjarta mitt springur af sorg!“
Það var þögn nokkra st.und og þau grétu hvert með
öðru; því næst settist Georg við hliðina á Klóu frænku, hélt í
hönd hennar og sagði henni með fáum áhrifamiklum orðum
frá hinni dýrðlegu burtferð manns hennar úr þessum heimi,
og skilaði hinni síðustu ástar kveðju.
Hér um bil mánuði síðar var það einn morgun, að öllu
þjónustufólki Shelbys var stefnt saman í stóran samkomusal
þar i húsinu, til þess að hlýða á nokkur orð, er hinn ungi
húsbóndi þeirra ætlaði að taia til þeirra.
Það fékk öllum mikillar undrunar, er hann hafði með sér
bunka mikinn af skjölum. Það voru lausnarbréf þeirra, og
las hann þau upp hvert á fætur öði'u og afhenti hverjum ein-
um jafnóðum; en allir, sem viðstaddir voru, gjörðu ýmist að
þeir grétu fagnaðartárum eða æptu af undrun.
En margir af þeim þyrptust umhverfis hann og báðu
hann með mikilli alvöru að láta sig ekki fara á brott, og
réttu honum aptur lausnarbréf sín með áhyggju svip.
„Vér hirðum eigi að vera frjálsari, enn vér erum. Vér
höfum ávallt haft allt það, er vér höfum þarfnast. Vér viljum
ekki fara héðan, frá þessu gamla heimili voru, og frá „massa“
og “missus" og öllum hinum".
„Kæru vinir mínir“ sagði Georg, þegar er hann gat feng-
ið hljóð; „það kemur ekki til þess, að þér þurfið að fara héðan
eða yfirgefa mig. Jörðin þarf eins mikinn vinnukrapt eins og
áður, og eg þarf að hafa eins margt þjónustufólk við hús mitt,
eins og eg hef haft að undaíörnu. En nú eruð þér upp frá