Fríkirkjan - 01.10.1901, Page 12

Fríkirkjan - 01.10.1901, Page 12
172 Klóa stóð kvíðafull á svip og horfði fram fyrir sig. „Veslings Klóa frænka!“ sagði Georg, og tók utan um hörðu, dökku hendurnar hennar, „eg hefði viljað gefa aleigu mína til að geta komið með hann með mér, — en hann er farinn til betri heimkynna“. Frú Shelby hrópaði upp yfir sig, en Klóa sagði ekkert; hún sneri sér undan og ætlaði út úr herberginu. Frú Shelby gekk hægt á eptir henni, tók i aðra hönd hennar, ieiddi hana með sér að stól, lét hana setjast og settist hjá henni. „Veslings, góða Klóa mín!“ sagði hún. Klóa lagði höfuð- ið að öxl húsmóður sinnar og sagði með þungum ekka: „0! missus, missus, hjarta mitt springur af sorg!“ Það var þögn nokkra st.und og þau grétu hvert með öðru; því næst settist Georg við hliðina á Klóu frænku, hélt í hönd hennar og sagði henni með fáum áhrifamiklum orðum frá hinni dýrðlegu burtferð manns hennar úr þessum heimi, og skilaði hinni síðustu ástar kveðju. Hér um bil mánuði síðar var það einn morgun, að öllu þjónustufólki Shelbys var stefnt saman í stóran samkomusal þar i húsinu, til þess að hlýða á nokkur orð, er hinn ungi húsbóndi þeirra ætlaði að taia til þeirra. Það fékk öllum mikillar undrunar, er hann hafði með sér bunka mikinn af skjölum. Það voru lausnarbréf þeirra, og las hann þau upp hvert á fætur öði'u og afhenti hverjum ein- um jafnóðum; en allir, sem viðstaddir voru, gjörðu ýmist að þeir grétu fagnaðartárum eða æptu af undrun. En margir af þeim þyrptust umhverfis hann og báðu hann með mikilli alvöru að láta sig ekki fara á brott, og réttu honum aptur lausnarbréf sín með áhyggju svip. „Vér hirðum eigi að vera frjálsari, enn vér erum. Vér höfum ávallt haft allt það, er vér höfum þarfnast. Vér viljum ekki fara héðan, frá þessu gamla heimili voru, og frá „massa“ og “missus" og öllum hinum". „Kæru vinir mínir“ sagði Georg, þegar er hann gat feng- ið hljóð; „það kemur ekki til þess, að þér þurfið að fara héðan eða yfirgefa mig. Jörðin þarf eins mikinn vinnukrapt eins og áður, og eg þarf að hafa eins margt þjónustufólk við hús mitt, eins og eg hef haft að undaíörnu. En nú eruð þér upp frá

x

Fríkirkjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.