Fríkirkjan - 01.04.1902, Síða 16
64
niðra henni, skipi sér á bak við fallbyssur djöfulsins, því það
getur ekkert samkomulag átt sér stað milli vantrúar og kristin-
dóms. Þolanlegri þykir oss þó hin opinbera, játaða vantrú,
heldur en verk þessara hálfu guðfræðinga — þessara andlegu
bullara og hálfgjörðra framþróunar manna á kristilegum ræðu-
pölluin, sem bæði trúa hiblíunni og trúa henni ekki, sem niðra
trúnni, til þess að þóknast efunar sýki heimsins og sinni eigin
drambsemi og finnst að þeir geti eigi sýnt hugrekki sitt betur
með öðru móti, en að hafa biblíuna að skotspæni og skjóta á
hinn almáttuga.
Það er mér stór huggan að guð hafi kunnað að stjórna
alheiminum áður en þessir menn urðu til, og að hann einnig
mun kunna það eptir að þeir eru horfnir af jörðunni. En, sem
sagt, allir þér, sem viljið þjóna myrkra höfðingjanum með því
að breytabiblíunni, gangið brott og skipið yður algjörlega hans
megin; og allir þér, sem trúið á guð og hið heilaga orð hans,
gangið fram til að berjast fyrir sannleikanum.
Biblían var hinn bezti arfur frá föður þinum og mun
verða hin bezta arfleifð, er þú getur eptirskilið börnum þínum,
þá er þú kveður þau hinni hinnstu kveðju, til þess að ílytja
til hinnar gullnu borgar hinu megin við fljótið.
Ungi maður, þú þarft ekki að skammast þín fyrir biblíuna
þína; það er engin dýgð til, sem hún mælir eigi með, engin
sorg til, sem hún getur eigi huggað og engin lagagrein í kristi-
Jegri löggjöf nokkurs lands, er eigi hafi hina dýpstu rót sína
í þessari bók; það er ekkert lnaustara og karlmannlegra fólk
til á jörðu, heldur en það, sem lýst er í þessari bók.
f*á er eg sá það i blöðunum síðastliðið þriðjudagskvöld, að
Gustave Doré væri látinn, þá hugsaði eg: „Er það mögulegt,
að þessi hönd sé nú fyrir fullt og allt hætt við sín meistara-
verk?“ Af öllum stórvirkjum þessa framúrskarandi listamanns
er þó ekkert eins mikilfenglegt eins og bibltan í myndum.
En biblian mun verða enn þá betur myndskýrð, vinir
mínir, þá er allar eyðimerkur eru orðnar að urtagörðum, allir
heinaðarskólar að vísindastofnunum, öll vötn að Genesaretum
með Kristi gangandi á yfirborðinu, og allir bæir að Jerúsalems-
borgum. Baðar hálfkúlur jarðar munu lofsyngja guði með ei-
lift hljómandi symblum, og jörðin mun verða Ijós fi'ammi
fyrir hásæti Immanúels. Þetta verður fyrir öll lönd, alia tíma
og allar aldir hin bezta myndskýring biblíunnar.
Útgefandi: Lárus Halldórsson, iríkirkjuprestur.