Liljan - 01.02.1916, Side 4
10
L I L J A N
Hér er ung sveinasveit, sem heiðrar konunginn, er
gaf íslendingum sérstakan fána og hin unga kynslóð
lofar að fara vel með slíka sæmdargjöf,
En við þekkjum konung konunganna, við sem heima
eigum í K. F. U. M. minnumst konungs himnanna, er
við horfum á krossmark fánans. Við syngjum svo oft:
Krýnið dýrðarkonung þann, já, krýnið, göfgið, lignið
Drottinn Jesúm Krist.
Áður var krossmerkið fyrirlitið, en nú er það í heiðri
liaft og öll okkar þjóð lieíir það fyrir augum. Kannist
þið við söguna af keisaranum, sem var á herferð? Hann
sá krossmerki á himninum og þessi orð: »In hoc signo
vinces« þ. e. »Undir þessu merki skalt þú sigra«. — Við
erum ekki keisarar, en við okkur er sagt um leið og
okkur er bent á fánann: »Undir þessu merki skalt þú
sigra«. Ileyrið þetta ungu Væringjar. Okkur er bent á
fagurt mark. Við eigum ekki að liggja sofandi eða í
deyfðardrunga, við eigum ekki að leyfa hinu illa að
komast inn um dyr hjartans, við eigum að sigra. Til
hvers skyldi okkur hafa verið geíinn fáni? IJað sloðar
lítið að gefa lyddum slíka gjöf.
Við viljum taka á móti gjöfinni eins og prúðum
drengjum sæmir. Viljið þið ekki líkjast hinum ungu
riddarasveinum, sem talað er um i veraldarsögunni?
Peir voru upplitsdjarfir af því að þeir lögðu stund á hið
hreina og fagra. Þeir voru Væringjar þeirra tíma og það
lagði ljóma af fögrum riddaradygðum, hæversku, hug-
rekki, siðprýði og líkn. Ávalt voru þeir reiðubúnir til
þess að hjálpa og voru hvergi hræddir. Nóltina áður
en þeir voru dubbaðir til riddara stóðu þeir á verði
inni í dómkirkjunni, þar var hinn ungi maður aleinn,
og þegar birti af degi heilsaði hann morgninum og