Liljan - 01.10.1916, Blaðsíða 14
78
LILJAN
umboðsmanni mínum kemur«, bætti hann við.
»Frétlir berast seint á Amazonsléttunni«.
En efinn skein enn úr augum dóttur hans.
»Eg er hrædd um, að það sé satt« sagði liún. Frh.
Frá Væringjum,
Ársæll Gunnarsson deildarforingi sigldi til Kaupmanna-
liafnar seint í ágúst til guðfræðináms. Um 20 Væringjar og
nokkrir aðrir félagar úr K. F. U. M. héldu lionum kveðju-
samsæti í K. F. U. M. kvöldið áður en hann fór. Bréf frá
honum til Væringja hirtist í þessu blaði. Ef einhverjir
Væringjar vilja skrifa honum, er utanáskrift hans þessi:
Hr. stud. theol. Arsæll Gunnarsson
Vestervoldgade 94 5!: ,
Köbenhavn
Danmark.
Knud Thomsen flokksforingi í 1. fl. er og fyrir sköinmu
farinn til Danmerkur, að líkindum alfarinn.
Guðm. H. Pétursson og Hallur Porleifsson eru nýorðnir
deildarforingjar og Sigfús Sighvatsson aðstoðarforingi er
skipaður flokksforingi 1. flokks í stað Knud Tliomsens.
Síra Friðrik Friðriksson stofnandi Væringjafélagsins
kom á Gullfoss frá Ameriku. Fjöldi Væringja og annara
tók á móti honum niðri á bryggju og var þar fagnaðar-
fundur. Hann lætur vel af þriggja ára dvöl og starfi sínu
veslan liafs. Hann var um tíma í Winnipeg en lengst af
suður i Bandarikjum, í Minnesota. Annars ferðaðist hann
uin allar íslendingabygðir i Canada og Bandaríkjunum
nema þær, sem eru vestur á Kyrrahafsströnd. Hann hefir
nú aftur tekið við framkvæmdarstjórastöðu K. F. U. M. og
hefir þegar talað á almennum samkomum tvö sunnudags-
j