Liljan - 01.10.1916, Blaðsíða 15
LILJAN
79
kvöld fyrir fjölda fólks. Á annari samkomunni var hátt á
5. hundrað manns en á hinni full 500. Hann kann frá
mörgu fróðlegu og skemtilegu að segja og gefst Væringjum
kostur á að heyra oft til hans í vetur, ef þeir koma á U.-
D. fund kl. 8*/» á miðvikudagskvöldum (einungis fyrir þá
sem eru orðnir fullra 13 ára eða eldri) eða á Y.-D. fund á
sunnudögum. Mætið á þeim fundum, Væringjar, og takið
jafnaldra ykkar með ykkurl
Nú eru æfingar byrjaðar enn á ný, því að Væringjar
þeir, sem dvalið hafa um sumartímann upp f sveit, og það
gera flestir, eru nú komnir lieim aftur og alt vetrarstarf
K. F. U. M. er byrjað. Væringjar geta þvi miður ekki not-
að hentugasta árstímann, sumarið, einsogskyldi til æfinga,
af því að þá eru svo fáir af félögunum í bænum. Hinir
lifa farfuglalífi, leita norður og austur á hóginn, þegar
sumrar, en halda suður á við, þegar haustar. Fólkið í
sveitunum fagnar komu farfuglanna, því að þá er von á
sól og sumri. Væringjar, flytjið sólskin með ykkur þangað,
sem þið eruð á sumrin, svo að fólkið þar hafi einnig
ástæðu til að fagna komu ykkar!
Væringjafélagið á nú tvö tjöld og flest þau áhöld, er
nauðsynleg eru við útilegur, en eitt skortir okkur all til-
finnanlega og er það kerra. Kerru verðum við að eignast
fyrir næsta sumar, þvi að eigi getum við altaf lifað á góð-
semi náungans. Kerrur þær, er skátar nota erlendis, eru
með tjaldi yfir og þannig gjörðar, að 6—10 drengir draga,
og kosta, hvorki meira né minna en 60 krónur. Þannig
lagaða kerru verðum við að eignast, og er hér með stofn-
aður »Kerrusjóður« með 5 kr. Pað vantar því 55 kr.
Hver kemur næst? • —
Kensla er nú aftur byrjuð í »Hjálp í viðlögum«. Hún fer
fram í tvennu lagi: Á mánudögum kl. 8'/a fyrir þá, sem
staðist hafa Væringjaprófið minna, og á fimtudögum kl. 8'/>
fyrir þá, sem ekki liafa tekið það próf. Mætið vel og slund-
vislega!
& & $