Kirkjublað - 01.03.1934, Síða 6

Kirkjublað - 01.03.1934, Síða 6
58 KIRKJUBLAÐ kyns, vegna þess, að sagan ber vitni og segir, að slíkur maður hafi lifað, og vér finnum, að þannig eiga allir að ummyndast til líkingar við hann. Kristindómurinn, sá sanni kristindómur, er allur sá straumur kærleiks og nýrrar vonar og endurleysandi fagnaðar, sem orðið hefir af starfsemi Jesú Krists, beint og óbeint, — af kenningum hans og fordæmi og um- hugsuninni um hann. Margir hafa hneykslazt á því, og talið það fásinnu, að tigna Jesúm sem Guð eða Guðs son. En ef Guð er hinn skapandi máttur allrar fuH' komnunar, hvar opinberast hann þá betur og mönnuitf skiljanlegar, en í mannssál, sem þrungin er ást og viti? Og hvaða guð er oss betra að tigna, en hina heilögustu og fullkomnustu mannssál? Villa mannanna hefir ekki verið fólgin í því að sjá guð í Jesú, heldur er hún fólg' in í því, að sjá ekki einnig guð í sjálfum sér og í gjör- vallri náttúrunni. Hún er fólgin í þessari blindu skiln' ingarvitanna, sem Jesús hlaut svo oft að andvarpa yfir og beita lækningamætti sínum við, að sjá ekki sjáand1 og heyra ekki heyrandi, guðsdýrð, allt í kringum oss -—' og stífla þannig straum hins guðlega lífs, sem annars fengi að flæða yfir skrælþurrar eyðimerkur vanmáttar- ins og óþroskans, í oss sjálfum og umhverfis oss, og breyta lífinu úr Dauðahafi eymdar og vonleysis í guðs- ríki fegurðar og kærleika. Því að kenning Jesú og lífs' hugsjón mundi gera þetta, ef vér tryðum á hana og breyttum eftir henni, ef vér værum eins viss um það og hann, að himnaríki væri í nánd, og yrðum jafn gagtf' þrungin og hann af kærleikanum til alls, sem lifir. En þrátt fyrir vanþroska mannanna og þar af leið- andi margvísleg mistök í hugsjónabaráttunni — þá hef' ir þó alltaf starfað í þeim trúarbrögðum, sem frá Jesu eru runnin, að einhverju leyti sá máttur Guðs, eða su náð Guðs, sem með honum sjálfum bjó. Og þaðatf breyddist hún ekki aðeins til austurs, heldur í allar átt- ir heims. Kristindómurinn er fljótið, sem spratt undan must-

x

Kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.