Kirkjublað - 01.03.1934, Side 14

Kirkjublað - 01.03.1934, Side 14
66 KIRKJUBLAÐ sem megnar að breyta auðninni í dýrð guðsríkis, sá sem, vill leiða oss á veginn og hefja hvern guðsson upp til hægri handar föðursins. Og kirkja hans — sem stofnuð er fyrir áhrifin frá honum, vill verða lífhleðslustöð, sem tekur við náðinni frá guði, sem streymir gegnum hann og til vor, og geislar henni frá sér aftur til allra sinna barna. — f Mesópótamíu, föðurlandi Adams og Evu, var ný- lega 300.000 ekrum óræktaðs lands breytt í akra og aldingarða með geisimiklum áveituskurði er leiddi vötn 0 Efrat-fljótsins yfir landið. Engin takmörk eru fyrir því, hvílíkum undrum slíkar áveitur fá orkað, þegar nærandi vatnsstraumurinn fær að gagntaka langþyrsta jörðina. Ef sérhver maður léti á sama hátt gagntakast af yndis- leik þeirrar náðar, sem bjó með Jesú Kristi; ef hver og einn maður hrifist til að vera farvegur þess guðsmátt- ar og þeirrar lífshugsjónár, sem bjó með höfundi kristn- innar — þá mundi kristindómurinn sannarlega verða að því fljóti, sem allt lífgaði að lokum — og þá mundi sér- hvert dauðahaf mannlífsins verða heilnæmt. FRÉTTIR BrætSrafélag FríkirkjusafnaSarins í Reykjavík haíði annað fræðslukvöld sitt sunnud. 18. febr. Flutti Knútur Arngrímsson er- indi um N. F. S. Grundtvig. Séra Benjamín Kristjánsson hefir dvalið hér í borginni und- anfarna viku. Flutti hann í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnud. 18. febr. prédikun þá, sem birtist nú i Kirkjublaði. — Tvö erindi flutti hann i útvarp, annað um trú og vísindi, hitt um viðfangs- efni trúarbragðanna. Ennfremur prédikaði hann í Fríkirkjunni í Hafnarfirði sunnud. 25. febr. StaSar-prestakall í Aðalvík er auglýst laust til umsóknar og veitist frá 1. júní. Umsóknarfrestur er til 15. apríl. Kirkjusjóður Borgarness. Sjóðurinn er stofnaður fyrir öt- ula forgöngu Þorbergs heitins Þorbergssonar trésmiðs í Borgar- nesi. Hann vann fyrir málefni sjóðsins, meðan honum entist ald- ur, með óþreytandi áhuga. Allur er sjóðurinn stofnaður með'

x

Kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.