Kirkjublað - 01.03.1934, Blaðsíða 15

Kirkjublað - 01.03.1934, Blaðsíða 15
KIRKJUBLAÐ 67 frjálsum framlögum og áheitum og ágóða af samkomum, sem haldnar hafa verið. Sjóðurinn er, samkvæmt skipulagsskrá stað- festri af konungi 8. des. 1932, eingöngu ætlaður til *kirkjubygg- ingar í Borgarnesi og viðhalds henni. Borgarnes hefir nú 473 íbúa og á kirkjusókn að Borg, en kirkjan þar er reist áður en nokkur teljandi byggð var í Borgarnesi, og langt of lítil, og er það mikill hemill á kirkjulega starfsemi í þorpinu, að hafa þar enga kirkju. Töluverður áhugi er fyrir kirkjubyggingu í þorpinu, og vænta menn, að hafizt verði handa um undirbúning málsins innan langs tíma. Reikningurinn sýnir annars, hvernig sjóðurinn er nú stæður og vöxt hans á síðasta ári. Er hann á þessa leið: Reikningur Kirkjusjóðs Borgarness árið 1933. T e k j u r : í sjóði f. f. ári (í Sparisjóði Mýrasýslu)........... kr. 5178.92 Minningargjafir........................................ — 72.00 Gjöf Rannveigar Ólafsdóttur til minningar um Frið- geir Sveinbjarnarson og Ingibjörgu Lífgjarnsdóttur — 100.00 Áheit og gjafir........................................ — 22.00 Ágóði af samkonni...................................... — 91.57 Vextir af sparisjóðsinnstæðu........................... — 253.46 Kr. 5717.95 G j ö 1 d : Sparisjóðsinnstæða 1. jan. 1934 .................. kr. 5717.95 Kr. 5717.95 Borgarnesi, 3. febrúar 1934. Björn Magnússon. Magnús Þorbjarnarson. Magnús Jónsson. . Lög við messusönginn hefir Sigfús Einarsson, dómkirkju- organisti, samið fyrir tilmæli Kirkjuráðsins. Það af þeim, sem not- að hefir verið i vetur í kirkjutyjm i Reykjavík, hefir mönnum fallið mjög vel í geð. Lögin eru kirkjuleg og smekkleg, og það er ekki hvað minnstur kostur þeirra, að þau eru einföld og auðveld. í'yrir útvarpsguðsþjónusturnar hefir mönnum utan Reykjavikur gefizt kostur á að kynnast þeim. Nú er verið að byrja að prenta l’au, og ætti því ekki að vera langt þangað til hægt verður að fara að nota þau almennt. Mýrdalsþingaprestakall er laust til umsóknar. Umsóknarfrest- ur er til 31. mars. Verður veitt í fardögum. Séra Björn O. Björnsson, Brjánslæk, flutti erindi í útvarpið sunnud. 25. febr. um ræktun lands og lýðs. Bálfararfélag Islands var stofnað í Reykjavík 6. febrúar. — Tilgangur félagsins er að vinna að því, að líkbrennsla komist á og

x

Kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublað
https://timarit.is/publication/485

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.