Ljósvakinn - 01.09.1924, Síða 15

Ljósvakinn - 01.09.1924, Síða 15
LJÓSVAKINN 77 48 ARA KRISTNIBOÐSSTARF. veit ekki sjálfur hvernig ég lauk bæn minni; en ég stóö á fætur meö ákafri sálaróró. Mað- urinn snéri sér að mér og sagði: »Pér sjáið live hágstödd við erum, ef pér getið nokkuð hjálpað okkur, þá gerið það í Guðs nafni«. í sama biii komu mér þessi orð í hug: »Gef þeim, sem biður þig«. Pað er undursamleg- ur kraftur i þessum orðum konungsins. Eg stakk hendinni niður i vasann, dró hægt og seinlega peninginn upp úr honum, fékk manninum hann og sagði um leið, að það virtist ef til vill hægðarieikur fyrir mig að hjálpa þeim þegar mér sjálfum liði i rauninni vel, en nú gæíi ég al- eigu mína og hefði ekk- ert annað eftir en von mína og traust á föðurn- um á himnum. Nú fór sterkur gleðistraumur um sálu mína. Eg man enn þá með hvaða til- finningum ég gekk heim þessa nótt. Hjarta mitt var álíka létt og pyngja mín. Mannlausar göl- urnar ómuðu af lof- söng, sem gleðin knúði af vörum mér. Þegar ég borðaði vatnsgraut- inn minn áður en ég fór að hátta, hefði ég ekki viljað skifta á honum og konungamáltíð. Þeg- ar ég kraup niður við rúm mitt, minti ég Drott- in á hans eigin orð að sá, »sem gefi fátækum láni Drottni«. Ég bað hann þess, að ég þyrfti ekki lengi að lána þessa peninga, þvl ann- ars gæli ég engan miðdegismat fengið dag- inn eftir. Ég lagðist til hvildar með friði og ró í sinni og svaf sætt og rótt. Morguninn eftir borðaði ég síðustu matarleyfarnar, einn disk af mjólkurgraut. Ég hafði ekki lokið við það þegar barið var að dyrum, það var pósturinn. Ég var ekki vanur að fá bréf á mánudögum því foreldrar minir og flestir aðrir vinir minir sendu ekki bréf eða bögla frá sér á sunnudögum. Ég var því hálfundr- andi þegar húsfreyjan kom inn til min með dálitinn böggul í hendinni. Ég tók við hon- A tullugii ára límabili eftir ad S. D. Aðventistar hö/ðu seni út hinn fyrsta krislniboða sinn frá Bandaríkjunum, var að eins slarfað i nienningar- löndum. Tala safnaðarmeðlima fjölgaði á þessu timabili frá 7000 (árið I8Vt) upp i 42000 fárið 1894). Arið 1894 sendum vér hinn fyrsta kristniboða til heiðingja-landanna, og á nœstu 28 árum fjölgaði safnaðar- meðlimunum frá 42000 (áríð 1894) upp í 209000 (árið 1922). Hin miklu framför pessa heims- víðlœka starfs má sjá á pvi að árið 1874 var tala safnaðarmeðlimanna alls 7000 en árið 1922 eru einungis krisni- boðsstarfendur vorir orðnir 7600. um og virti hann nákvæmlega fyrir mér, en þekti ekki höndina á utanáskriftinni, og af þvi að stimpillinn á frimerkinu var auk þess mjög ógreinilegur, var ég einskis visari um hvaðan þessi sending kæmi. Þegar ég opnaöi böggulinn, fann ég enga linu skrif- aða, en eina vetlinga vafða inn í bréf, og þegar ég lók það utan af þeim, datt tiu króna seðill úr því. »Guði sé lof!« hrópaði ég. »Fjögur hundruð prósent fyrir tólf klukku- stunda lán — það voru háir vextir. Kaup- mönnunum hér í Húll myndi þykja fengur í þvi, að lána peninga sina með slikum kjör- um!« Pennan sama dag fast- réð ég, að leggja pen- inga mina i þann banka, sem borgar þá allra- hæstu vexti og auk þess verður aldrei gjaldþrota — og þess heíir mig aldrei iðrað. Kinversk kona kom á heilsuhæli vort i Shang- hai, hún var sjúk bæði á sál og líkama. Hér fékk hún ekki einungis líkamlega heilsu, heldur fann hún einnig hinn mikla lækni, sem getur læknað alla sjúk- dóma sálar vorrar. Hún fór svo heim til sin til aö kunngera hinn gleðilega boðskap. Viðleitni hennar bar ávöxt, og eftir nokkra mánuði voru átta af fjölskyldunni, sem glöddust i trúnni á hinn lifandi frelsara. Prir af þeim höfðu verið þrælar mestan hluta æfl sinnar. Enda þótt þeir væru keypt- ir af mönnum, sem höfðu gnægð forgengi- legra auðæfa, geta nú þessir þrælar, sem eru keyptir og borgaðir af konungi kon- unganna glatt sig við hin óforgengilegu auð- æfi Guðs náðar. Petra Tönheim.

x

Ljósvakinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósvakinn
https://timarit.is/publication/486

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.