Ljósvakinn - 01.09.1924, Page 16
78
LJÓSVAKINN
Hið makidoniska kall frá
landi Incanna.
»Pœr pjóðir, sem ekki pekkja pig, skulu
hraða sér lil pín vegna Drotlins, Guðs
píns, og vegna hins heilaga ísraels Guðs.
Jcs. 55, 5.
Þegar Kristur dvaldi hér meðai mannanna,
þyrptist fólkið kringum hann að hlusta á
boðskap hans og fá lækningu.
Við eitt slíkt tækifæri kom hópur af Grikkj-
um til eins af lærisveinum hans með þessa
hjartnæmu ósk: »Herra, vér viljum sjá
Jesúmcc. Og þeir sáu hann, sáu kraftaveik
hans, heyrðu hin náðarriku orð hans og
hann dró þá til sín með krafti boöskapar
sins. Jesús hrærðist svo af þessu kalli
heiðingjanna, að hann bað föður sinn um
að gera nafn hans dýrðlegt í nærveru
þeirra. »Þá kom rödd frá himni: Ég hefi
gert það dýrðlegt og mun aftur gera það
dýrðlegtcc. (Jóh. 12, 28.). Þetta var í þriðja
sinn, sem mannleg eyru heyrðu rödd
föðursins.
Nær 20 árum síðar heyrði Páll, annar
mesti kristniboði og kennari heimsins,
rödd í nætursýn, sem kallaði til hans
og bað hann koma yfir til Norðurálfunnar
og hjálpa Makedoníumönnum. »En jafnskjótt
og ég hafði séð þessa sýn, leytuðumst vér við
að komast af stað til Makedoníu, þar sem
vér ályktuðum að Guð hefði kallað oss til
að boða þeim fagnaðarerindiðcc. (Post. 16, 10.)
Á hinum fyrsta stað, sem þeir námu staðar,
aðalborg Makedoníu, var grundvöllur krist-
indómsins í Norðurálfunni lagður, og horn-
steinn safnaöar Fillippíborgarmanna. Þangað
skrifar Páll meðan liann er fangi í Róm eitt
af safnaðarbréfum sinum.
Á þessum tímum senda hinar 60 milj-
ónir i Suður-Ameríku makedonískt kall til
allra Guðs barna. Þá vantar þá
hjálp, sem einungis fagnaðarerindið
getur veitt. »Hver, sem eyru hefir
að heyra hann heyricc.
Frá hinum hæstu bygðum í And-
esfjöllum, hljómar átakanlegt kall
af vörum Indíánanna, niðja Incanna,
sem áður fyrri voru svo frægir. Frá
hásléttunum frá Bolivia til Ecuador
bergmálar kallið: »Vér viljum sjá
Jesúmcc.
S. D. Aðventistar hafa heyrt hróp
og áskoranir Incanna og gefið þeim
gaum. í milli 10 og 20 ár liafa þeir
liaft kristniboða kringum hið fræga
Titicacavatn, sem liggur þvert yfir
iandamærin milli Bolivia og Peru.
Nú eru milli 10 og 20 fjölskyldur
hvítra manna settar yfir jafnmargar trú-
boðsstöðvar til þess að uppfræða þessa Indí-
ána um veg lífsins.
Á þessum trúboðsstöðvum er ungum Indí-
ánum kent orð lífsins og eru þeir síðan
sendir út til að stofna kristniboðsskóla meðal
landa sinna. Fjörutíu þess konar skólar eru
Keíchikan. Alaska, par sem vér
höfum krisniboðsskóla.
Inca-Indiánarnir að byggja kirkja.