Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1937, Blaðsíða 6

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1937, Blaðsíða 6
36 MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M. ur að vera og verða fólgin í vitnisburði um Ljósið, svo að það íái ljómað um krók og kima veraldarinnar, og ujjplýst hjöitu og hugi manna. Fyrirbænarefni: Alþjóðasamband vort og aðrar alkirkjulegar hreyfingar. Bænavikan í f.yrra var undirbúningsatriði fyrir alþjóðafulltrúaþingi K. F. U. M. í My- sore, Indlandi. Látum oss nú biðja um að áhrif þess þings verði sem víðtækust. Látum oss einnig minnast hinna kristilegu alþjóða þinga, sem haldin hafa veiið og verða hajd- in á tímabilinu 1937—1939. 1. Hið fyr umgetna alþjóðaþing K. F. U. M. í Mysore í Jan. 1937. 2. Alþjóða kirkjuþingið í Oxford í Júlí 1937. 3. Fulltrúaþing »Kristilegu stúdentahreyfing- arinnar« í Japa.n sumarið 1938. 4. Alþjóðaþing K. F. U. K. í Kína 1938. 5. Alþjóða-trúboðaþingið í Kína 1938. 6. Veraldarþing hinna kristnu kirkna fyrir æskulýðshreyfinguna. Látum oss biðja fyrir þessum Alþjóðahreyf- inguug að áhrif þeirra mættu ná út yfir heimsbyggðina alla. Biðjum að Guð uppvek' útvalda leiðfoga. Biðjum um aukna og vax andi samúð í hinu allsherjar kristna starli. Mánud. 15. Nóv. Jeg- er Ijós í heiminn koniið. Veraldarandinn á hverri tíð, einnig vorri, leyfir, að menn noti gæði þessa lífs (bæði tímanleg og andleg) beint og ákveðið í þjón- ustu þess, sem alls ekkert á skylt við nokk- urt yfirnáttúrlegt vald eða vilja, Guðs, — eða þá að hann tekur öll þessi gæði beint í þjónustu djöfullegra valda til etflingar upp reisnar andans gegn Guði. I fyrra tilfellinu sviptir heimsandinn lífið allri tilfinningu fyr- ir nokkrum æðri og dýpri tilgangi; í síðara tilfellinu setur hann upp spilltan og spillandi tilgang með lífið í staðinn fyrir hinn sanna vísdómstilgang Guðs, sem. rýmt hefur veriö úr vegi. Hið einasta áhrifamikla svar, sem unt er að gefa heimsandanum, er það að fyllast anda lífsins, þeim anda, sem algjörlega set,ur traust sitt til Guðs, Drottins himins og jarðar. »Elska skaltu Drottinn Guð þinn af öllu hjarta þínu og af allri sáju þinni og af öll- um. huga, þínum, og af öllum mixtti þínum«. (Lúk. 10, 27). »Honum einum skalt, þú þjóna«. (Lúk. 4, 8). Viðurkenning og játning þessarar hollustu við Guð ber í sjer vitnisburð um þá staðreynd, að maðurinn getur ekki lifað s'innu mann- legu lífi, ef hann hefur engan herra yfir sjer eða reynir til að verða sinn eigin herra. Sá árekstur, sem vjer vercium varir við á svo mörgum. svæðum lífsin-, stafar af þeirr; stöðugu tilhneigingu vorri, að gleyma sann- leikanum og neita hinu æðsta um, hollustu vora, og af því hve erfi'tt vjer eigum með að varðveita undirgefni vora. Þegar grundvallar-sambandið við Guð dvín- ar eða, dofnar í lífi hins einstaka manns, kemst sá einstaklingur í, baráttu við sjálfan sig, og þegar þetta á sjer stað í samfjelags- lífinu, kemst það á ringulreið, svo af því leið- ir friðarsl.it og upp kemur »skeggöld, og skálm- öld« með öllum ófriðarógnum. En Ijósið skín í myrkrinu (Jch. 1, 5), ljós þekkingarinnar á dýrð Guðs í ásjónu Jesú Krists (2. Kor. 4, 6) og vald m.yrkranna megnar alls ekkert á móti því Ijósi. Og h,a,nn lýsir inn í myrkrið í. oss, og vjer losnum. við tilfinningu einstæðingsska.par og vonarleysis í baráttu vorri, og verðum færir um að sigra. Fyrirbænarefni: Fjelagsstarfið í Afríku. Fjelagsskapur vor á. í vök að verjast víðu í Afríku, og víða vantar fra.mkvæm.dastjóra;

x

Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík
https://timarit.is/publication/497

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.