Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1937, Síða 11
MÁNAÐARBLAÐ K. F. U. M.
41
Sumarstarfið.
Laugardaginn 5. júní fóru unglingadeildn-
K. F. U. M. í Reykjavík og Hafnarfirði suð
ur í Kaldárssel. Þett,a. var í annað skipti, sem
U. D. þessara fjelaga hjeldu mót með sjer í
Kaidárseli. Þátttakan var enn meiri en árið
áður. Þegar flestir voru mun talan hafa verið
um eða yfir hundrað; að vísu voru sumir of
ungir til að geta talizti reglulegir þátttak-
endur.
Um kvöldið hjelt síra Friðrik Friðriksson
erindi, sem nefndist,: »Á hverju byrjar þú líf
þitt?« Hann talaði út frá Matf. 7, 24—27 og
nokkrum versum, í II. Mósebók 33 umi bjarg
aldanna. Það var alvarleg stund og grípandi.
Morguninn eptir flutti Öskar Evertsson er-
indi, er nefndist: »Hvenær er jeg kristinn?<:
Benti hann á, þá alvarlegu kröfu, sem því
fylgir. Ennfremur fóru og fram umræður fyr-
ir hádegi. Yfirskrift þeirra var: »Kristur og
æska,n«. Munu margir, sem þær heyrðu geta
tekið undir með síra, Friðriki, en hann sagði,
að það hefði glatt sig að hlusta á þessar um-
ræður, einkum, af því að þær hefðu frekar
verið vifnisburðir en, umræður. Eftir hádegið
áttu menn frjálst og fóru víða. Margt er fag-
urt í umhverfi Kaldársels: fjöll og hraun,
hellar og gjár, skógarkjörr og Kaldá sjálf.
Kl. um 5 síðdegis var enn fundur. Þá tal-
aði Ástráður Sigursteindórsson, stud. theol.,
um »da,glegt líf með Jesú« út. frá Lúk. 9,
23—24, og síra Friðrik talaði út frá oröum
í byrjun 66. kap hjá Jesaja. Voru það hvort-
tveggja erindi, semi höfðu erindi til ungra
mjanna til leiðbeiningar og brýningar.
Laugardaginn 3. júli fór fyrsti ílokkurinn
af stað í sumarbúðir K. F. U. M. Nú var
ekki förinm heitið í Vatnaskóg eins og und-
anfarin ár, heldur innar í Svínadal, í Korna-
hlí.ð, viðlandamæri Draghálso> Geitabergs. Sá.
staður var valinn vegna þess, að þa.r er bæði
skógur og vatn, og a,uk þess er hann í sama
dalnum og Vatnaskógur. Ennfremur sýndu
báðir bændurnir, Jón á Geitabergi cg Bein
teinn á Draghálsi oss hina mestu velvild og
vinsemd í öllum hlutum. Beinteittn láttaði land
ókeypis, en í hans landareign st’ðu búðirttar.
Eigum vjer þeim báðum afar mikið upp aö
inna fyrir alla vinsemd þeirra og hjálp. Flokk -
ar voru í Kornahlíð frá 3.-24. júlí ,cg 7.—14.
ágúst. Bezt veður fjekk flokkurinn, sem var
9.—15. júlí. Það var einnig stærsti flokkur-
inn. Síra Friðrik sieldi til Danmrrkur í sum.
ar 02' gat því ekki verið með. Ýmsir fleiri
af eldri meðlimum, sem tekið hafa þátt í sum-
arstarfinu, gátu ekki verið með í Kornahlíð.
Allt gekk þó stór> slysalaust, þótt veðrið væri
stundum slæmt. I Ágúst-flokknum stóðu
fossarnir öfugir á stundum, og vatnið var
mikið á láglendinu. Það er miargt, sem skyggir
á, í minningum þessa sumars. En þrátt fyrir
það er og margt, sem. gleöur. Þrátt fyrir bað
að Ágúst-flokkurinn fengi verst. veðrið, skil-
ur hann eftir minningar um góða samveiu
með drengjum, sem, vöru fullir f jörs og áhuga
og ljetu ekki óblíðuna aftra gleðinni.
Eins og gefur að skilja fjekk sumarstarfs
nefndin aukið verkefni í sumar. Hún keypti
nýtt tjald. Til þess var aflað fjár með gjafa-
kortum, mjög smekklegum með myndum úr
Vatnaskógi. Voru þa,u afhent gegn 10 krcna
framlagi. 1 staðinn fyrir eldhúsið í Vatna-
skógi var fenginn að lá.ni verkamannaskúr hjá
bænum. Var hann lánaður ókeypis. Fram og
aftur var hann fluttur á bílum. Það v>ar
margt, sem jók kostnað við sumarstarfið í
suraar, og var þó haldiö sama, verði á dvöl
í Kornahlíð, og verið hafði í Vatnaskcgi.
Nokkrir fengu ókeypis dvöl fyrir styrk þann,
sem Y. D., U. D. og A, D, skut.u saman í vor,
auk þess var veitt úr »Handavinnusjóði«.
Laugardaginn 11. September hófst. A. D.
mótið í Kaldárseli. Þáfttaka var af skornum
skamti. Þetta mót: var haldið undir forystu
K. F. U. M. í Hafnarfirði eins og tvö unú-
anfarin sumur. Um kvöldið flutti Jóel Ing-