Mánaðarblað K.F.U.M. í Reykjavík - 01.08.1937, Page 14
44
MÁNAÐARBLAÐ k. f. xj. m.
hverfa. Pá yrði yndislegt að búa í Reykjavík.
Þá rynni upp ný öld.
Miðvikudagur.
Mark. 3, 13—19. Útvcdmugin. Jesús valdi
þá, sem hann vildi sjájfur. Og þeir fóru til
hans. Hann velur þig til einhvers. Hvað gjör
ir þú þá?
Fimmtudagur.
Mark. 3, 20—30. Dauðmynd. Engin synd
er svo stór, að Guð geti ekki fyrirgefið hana.
Jesús dó fyrir allar syndir. En Guð getur
þó ekki fyrirgefið þeim, serm vilja ekki kann-
ast við, að þeim sje þörf á fyrirgefningu. Ját-
um því syndir vorar.
Föstudagur.
Mark. 3, 31-—35. Bræður Jesú. Hugsaðu
þjer, að þú hefðir verið einn af þeim. Hvaða
áhrif hefði það haft á þig? En lestu nú aptur
35. versið.
Laugardagur.
Mark. 4, 1—9. Dcemisögur. Jesús talar í
dæmisögum. En þær verða þjer ekki að gagni,
nema þú viljir skilja, þær. Jesús gefur skýr-
inguna. Hann vill láta spyrja sig?
Sunnudagur.
Mark. 4, 10—13. Leyndardómar Guðs ríkis.
Þeir, sem spurðu fengu að vita þá, en hinir
ekki. Hvort viltu heldur vera í hópi þeirra,
sem spyrja, eða hinna, »sem fyrir utan eru«?
Lærisveinn eða ekki?
Mánudagur.
Mark. 4, 14—20. Femskonar drengir. 1)
Alvörulausir drengir. 2) Östöðugir og kveif-
arlegir drengir. 3) Ágjarnir og hjegómagjarn-
ir drengir. 4) Trúaðir drengir, sem sýna
trúna í verki. — Hvað ert þú? Hvað viltu
vera? Hvers þarftu nú að biðja,?
Þriðjudagur.
Mark. 4, 21—24. Til hvers er Ijósið? Til að
lýsa. Láttu ljósið þitt. lýsa. Þú veizt, hvað
gott er. Gerðu það.
Miðvikudagur.
Mark. 4, 26—29. Af sjáifri sjer ber jörðin
ávöxt. Nái Guðs ríki rótfestu í hjarta þínu,
þá m,un það bera ávexti í breytni þinni. Lof
aðu því að komast að og vaxa í þjer. Lestu
Guðs orð með bæn á, hverjum degi.
Fimmtudagur.
Mark. 4, 30—34. Mjór er mikils vísir. Gucis
ríki byrjaði smátt. Fáir voru í fylgd með
Jesú í byrjun. En þeim fjölgar alltaf, Guðs
ríki vex og útbreiðist. Bið þú fyrir heiðingj-
unum.
Föstudagur.
Mark. 4, 35—41. Hafið þjer enn enga trú?
Þannig spurði Jesús lærisveina sína. Þannig
spyr hann lærisveinana, enn. Hverju svarar
þú? Trúir þú Jesú fyrir þjer? Hvernig sem
á stendur?
Laugardagur.
Mark. 4, 24. Hvað heijrir þú? Heyrir þú
Guðs orð? Viltu heyra, það? Viltu breyta ept-
ir því? Mældu þjer ekki of lítið af Guðs orði.
Láttu heldur bæta við þig.
Æskulýðsviku
er áform,að að halda á eftir bænavikunni,
dagana 22.-28. nóv. Efni hennar, fyrirkomu-
lag og ræðumenn, verður nánar auglýst í dag-
blöðunum og sérstakri efnisskrá. Biðjum um
blessun Guðs yfir bænavikuna, æskulýðsvik-
una og starf fjelaganna yfirliett.
PRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAR