Verði ljós - 01.12.1896, Side 3

Verði ljós - 01.12.1896, Side 3
179 Fæðing ígsú og fæðing vor. Jólahugleiðint; optir icetor Helgn Bál. Hálfdánarson. Enn að nýju cr þá upprunninn oss sá hinn mikli og fagri fagnaðardagur, sem allir vjer, er trúum á Jesúm Krist, liöldum hátíðlegan í minningu fæðingar hans, sem er hið mesta furðuvcrk, sem við liefir borið, hið mesta miskunnarverk, sem fram við oss hefir komið. Enn að nýju höfum vjer heyrt blessaðan jólaboðskapinn, guðspjallið allra guðspjalla, guðspjallið um fæðingu frelsara vors og hina dásainlcgu atburði, sem henni urðu samfara. Enn að nýju höfum vjer í anda verið leiddir til hinnar fjarlægu Betlehemsborgar, til þess að sjá og heyra alt, sem gjörðist þar hina dýrðlegu fæðingarnótt drottins vors Sú birta guðs, sem ljóm- aði kringum hirðana, hefir enn að nýju ljómað vorri sálarsjón, og lofsöngur englanna hljómað fyrir vorri andlegu heyrn. Og ásamt hirðunum höfum vjer i anda nálægt oss jötunni, þar sem hið bless- aða barn hvíkli. En þegar vjer í huga vorunt virðum fyrir oss alt það, er gjörðist þessa dýrðlegu nótt, og hinar miklu afleíðingar þess, þá gefur það oss tilefni til margra mikilvægra hugleiðinga. Eins og ihugun þessa hlýtur öllu fremur að lypta huga vorum í hæðirnar til liins algóða, æðsta föður, eins hlýtur það líka að snúa athygli vorri til sjálfra vor og knýja oss til að íhuga hag vorn, bæði eins og hann licfði verið án Krist, og eins og hann nú er orðinn fyrir fæðingu hans. Og þegar vjer látum hugann nema staðarvið fæðing Jesú, er eðlilcgt, að oss komi undir eins vor eigin fæðing til liugar, hvað vor fæðing væri án Jesú fæðingar, og hvað vor fæðing er orðin fyrir Jesú fæðing. Þess vegna veri það nú og vor jólahugleiðing: Hvernig fæðing frelsara vors héfir helgað og blessað vora fæðingu. Láttu, góði guð! þessa hugleiðingu verða þjcr og þínum syni til dýrðar, en oss til and- legra hcilla. 1. Til þrældóms værum vjer fæddir, ef guðs sonur væri ekki fæddur oss; en fyrir hans fæðing erum vjer fæddir til frelsis. Hið andlega frelsi var eitt af hinum dýrmætu gjöfum, sem hinir fyrstu menn voru upphaflega af guði gæddir. En við synda- fallið varð sú breyting á þessu, að þeir mistu hið dýrðlega guðs- barna-freísi, urðu syndinni háðir og þeirri óuáttúru, sem lienni fylgir. Frelsi þeirra breyttist í ánauð. En þessi ánauðarhagur

x

Verði ljós

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verði ljós
https://timarit.is/publication/501

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.